Trönuber / e: Cranberry
Trönuber eru skyld bláberjum en vaxa ekki hér á landi. Berin eru notuđ til matar, en snemma á öldinni var fariđ ađ nota berin gegn blöđru- og nýrnasjúkdómum. Vísindamenn tóku eftir ţví ađ ţvagiđ varđ súrara eftir ađ fólk drakk trönuberjasafa og ályktuđu ađ sú vćri ástćđan fyrir ţví ađ safinn virkađi á ţessa sjúkdóma, sem yfirleitt stafa af bakteríusýkingum. E.coli er algengasta orsök ţvagfćrasýkinga af ýmsu tagi og ţar sem slíkar bakteríur ţola ekki súrar ađstćđur var ţetta talin ástćđan. Nú hefur hinsvegar komiđ í ljós ađ ađalástćđan fyrir ţví ađ trönuberjasafinn virkar svona vel á t.d. blöđrubólgu er ekki ţetta súra umhverfi sem hann skapar, heldur sú stađreynd ađ í honum eru efni sem heita proanthocyaníđ og koma ţau í veg fyrir ađ bakteríurnar geti fest sig viđ blöđruvegginn. Ef bakteríurnar geta ekki haldiđ sér í vegginn, flćđa ţćr bara út međ ţvaginu og valda engum skađa.3, 4
Eiginleikar trönuberjasafa hafa veriđ rannsakađir, t.d. var gerđ tvíblind rannsókn međ 153 konum sem voru ađ međaltali 78,5 ára. Var ţessum hópi kvenna skipt í tvennt og fékk annar helmingur ţeirra stađlađan trönuberjadrykk en hinn fékk tilbúinn safa sem leit eins út og bragđađist eins en innihélt ekki trönuber. Í báđum drykkjunum var jafn mikiđ af C-vítamíni til ţess ađ útiloka áhrif ţess á niđurstöđurnar. Í ljós kom ađ bakteríum og hvítum blóđkornum fćkkađi um 58% í ţvagi ţeirra sem drukku trönuberjasafann. Einnig hafa rannsóknir leitt í ljós ađ konur sem fá síendurtekna blöđrubólgu, hafa oft ţannig ţvagblöđru ađ ţađ er auđvelt fyrir bakteríurnar ađ festa sig viđ blöđruvegginn. Trönuberjasafinn hefur ţví áhrif á rót vandans.
Ráđlagt er ađ taka inn 300 til 400 mg af ţurrkuđu ţykkni tvisvar á dag. Engin auka- eđa eituráhrif hafa komiđ í ljós af neyslu trönuberja, hvort heldur er hjá fullorđnum, börnum, ófrískum konum eđa konum međ börn á brjósti.2 Konur sem drukku 300 ml af trönuberjasafa daglega í sex mánuđi fengu 50% sjaldnar blöđrubólgu en ţćr sem ekki fengu safa, sem ţakka má ţví ađ trönuberjasafinn hindrar bakteríurnar ađ setjast á veggi ţvagblöđrunnar og ţvagrásarinnar.1
Heimildir:
- Lazarides, Linda: The Nutritional Health Bible. Thorsons, 1997
- www.mothernature.com
- www.consumerlab.com
- www.vitaminworld.com






