Fitusýrur
Það er mikill misskilningur að forðast eigi alla fitu í matarræðinu, en stundum vill gleymast að fitutegundir eru margskonar og að við þurfum fitu til að viðhalda heilbrigðri líkamsstarfssemi. Við þurfum lífsnauðsynlegar fitusýrur m.a. fyrir eðlilega starfsemi sjónhimnu, taugaboða í heila, taugavefs og nýrnahetta. Skortur á fitusýrum getur m.a. stafað af einhæfri fæðu eða streitu. Omega-3 og omega-6 eru fitusýrur sem hvor um sig flokkast í undirflokka og tilheyra góða fituhópnum. Þær eru hluti af þeim lífsnauðsynlegu fitusýrum sem við þurfum en líkaminn getur ekki framleitt sjálfur. Við þurfum því að gæta þess að fá þær úr fæðunni. Þær er að finna í ýmsum fæðutegundum eins og hveitikími, ólífuolíu, valhnetum, sojabaunum, lýsi, laxi, túnfiski og makríl svo eitthvað sé nefnt.
Jafnvægi þarf að ríkja milli neyslu omega-3 og omega6 fitusýra, en matarræði í hinum vestræna heimi inniheldur mun meira af omega-6 (jurtaolíum) en omega3. Það getur valdið vandræðum í líkamanum þar sem of mikið af omega-6 getur dregið úr upptöku eða frásogi líkamans á omega-3. Hins vegar dregur mikil neysla af omega-3 ekki úr upptöku á ómega-6.
Omega-3 fitusýrur skiptast í EPA (eikósapentanósýru) og DHA (dokósahexanó-sýru). Það er löngu þekkt að EPA gegnir mikilvægu hlutverki í styrkingu á kransæðakerfinu, bæði við að halda kransæðunum hreinum og draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Hins vegar er styttra síðan að ágæti DHA uppgötvaðist í tengslum við heilastarfsemi og sjón.1 Stór hluti heila og augna er gerður úr fitusýrum, að stærstum hluta DHA og AA (arakídónsýru) en þá síðarnefndu vinnur líkaminn úr omega-6. Þessar fitusýrur sjá til þess að taugafrumuhimnur starfi eðlilega og að boðin milli þeirra í heilanum fari eðlilega fram. Þær hafa því áhrif á minni, einbeitingu, tal og hreyfiþroska. Rannsóknir hafa sýnt fram á skort á ákveðnum fitusýrum í ofvirkum börnum.2,3
Omega-3 er til sem bætiefni frá mörgum framleiðendum. Fyrir þá sem nota omega-3 til að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma er upplagt að nota hvítlaukstöflur með, því hvítlaukurinn stuðlar einnig að heilbrigði þeirra.
Heimildir:- Farquharson J, Cherry EC, Abbasi KA, Patrick WJA. Effect of diet on the fatty acid composition of the major phospholipids in infant cerebral cortex. Archives of Disease in Childhood 72: 198-203. 1996.
- Stevens L et al. Essential Fatty Acid metabolism in boys with Attention Deficit Hyperactivity Disorder. Amer. Journal of Clinical Nutrition 62: 761-8. 1995.
- Stevens L et al. Omega-3 Fatty Acids in boys with behaviour, learning and health problems. Physiology & Behaviour 59: 915-20. 1996.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.






