Línolía / e: Flaxseed oil
Línolía er unnin úr hörfrćjum eđa línfrćjum. Hún er ein af fáum olíum úr jartaríkinu sem inniheldur omega-3 fitusýrur og er ţví oft ráđlögđ sem bragđbetri kostur í stađ lýsis. Nauđsynlegt er hins vegar ađ átta sig á ađ omega-3 fitusýrurnar í línolíu eru ađrar en ţćr sem viđ fáum úr lýsi. Línolía inniheldur alpha-línólen-sýru (ALA) en lýsi aftur á móti inniheldur eikósapentaenóiksýru (EPA) and dókósahexaenóiksýru (DHA) og getur ţví gagnsemi línolíu veriđ önnur en lýsis. Línolía inniheldur auk omega-3 einnig heilnćmar omega-6 fitusýrur.
Hlutverk ţessara fitusýra er margţćtt. Ţćr eru nauđsynlegar til ađ halda kólesteróli í jafnvćgi og til myndunar hórmóna fyrir ónćmiskerfiđ og fyrir blóđţrýstinginn. Ţćr stuđla ađ langtímaţreki og betra úthaldi ţar sem ţćr styđja viđ fyrir súrefnisnýtingu líkamans. Ţćr örva efnaskipti, meltingu og starfsemi heila. Í raun eru ţetta megrandi fitusýrur ţar sem ţćr örva fitubrennslu en draga úr vökvasöfnun og sćtindafíkn. Fyrir húđina eru ţessar fjölómettuđu fitusýrur eins konar innri snyrtivörur.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.





