Náttljósarolía / e: Evening Primrose Oil
Náttljós (Evening primrose) er amerískt villiblóm sem dregur nafn sitt af ţví hve síđla dags ţađ opnar hin viđkvćmu krónublöđ sín. Frć ţessa blóms eru ein besta náttúrulega uppspretta cis-gamma-linolen sýru. Sú sýra er önnur af tveimur flokkum fitusýra sem eru lífsnauđsynlegar fyrir líkamann, rétt eins og vítamín.2
Ţessir tveir flokkar eru linol sýra og alpha linolen sýra og til ţess ađ líkaminn geti nýtt sér ţćr verđa ákveđin efnahvörf ađ eiga sér stađ inni í líkamanum. Ótal ţćttir geta truflađ og jafnvel komiđ í veg fyrir ţessi efnahvörf t.d. aldur, exem, sykursýki, áfengisdrykkja og ákveđin hormón sem losna viđ streitu. Ţví er nauđsynlegt ađ taka inn olíur sem hafa komist í gegnum ţetta skref utan líkamans.4
Í Evrópu hefur náttljósarolía veriđ notuđ gegn liđagigt, exemi, taugasjúkdómi sem tengist sykursýki (diabetic neuropathy) og eymslum í brjóstum kvenna í tengslum viđ fyrirtíđaspennu. Algengt er ađ áhrifin komi ekki í ljós fyrr en eftir nokkurn tíma, venjulega ţarf ađ nota olíuna í 2-3 mánuđi áđur en bati kemur í ljós. Ţetta er ţó misjafnt, eftir ţví um hvađa sjúkdóm er um ađ rćđa.2
Ekki er nákvćmlega vitađ hver besti dagskammturinn er, en oft er miđađ viđ 200-500 mg af gamma-linolen sýru daglega (2-5 hylki af náttljósarolíu), dreift yfir daginn. Best er ađ ađ taka hana međ mat til ţess ađ líkurnar á meltingartruflunum verđi sem minnstar. 2
Náttljósarolía og fyrirtíđaspennaKomiđ hefur í ljós ađ ţćr konur sem ţjást af eymslum í brjóstum í tengslum viđ fyrirtíđaspennu hafa truflađ fitusýrujafnvćgi. Í opnum rannsóknum sem gerđar voru á Bretlandi kom í ljós ađ 44% kvenna sem ţjáđust af sjúkdómnum fundu jákvćđ áhrif ef ţćr tóku náttljósarolíu. Tvíblind rannsókn, ţar sem 73 konur tóku ţátt, leiddi einnig í ljós ađ óţćgindi minnkuđu töluvert hjá ţeim konum sem fengu náttljósarolíu á međan viđmiđunarhópurinn fann engan mun. Í ţessari seinni rannsókn fengu ţátttakendur annađhvort 3 g af náttljósarolíu eđa 3 g af lyfleysu daglega í ţrjá mánuđi án ţess ađ vita um hvort var ađ rćđa.2 Náttljósarolía er einnig talin hafa jákvćđ áhrif á önnur einkenni fyrirtíđaspennu sérstaklega ţunglyndi og verki í brjóstum.1
Náttljósarolía og exemÁhrif náttljósarolíu á exem hefur veriđ rannsökuđ allítarlega. Helstu niđurstöđur ţeirra rannsókna eru ţćr ađ hátt hlutfall sjúklinga fćr verulegan bata, kláđi minnkar mikiđ, auk ţess sem ţeir ţurfa bara ađ taka ţriđjung af ţeim steralyfjum sem ţeir ţurftu ađ taka áđur. Ţetta eru niđurstöđur úr m.a. tveimur óháđum rannsóknum.5
Náttljósarolía og liđagigtNokkrar rannsóknir hafa einnig fariđ fram á sjúklingum međ liđagigt. Ţar kom m.a. í ljós ađ bólgur og sterk ofnćmisviđbrögđ minnkuđu međ notkun olíunnar.5 Bestur árangur náđist ţegar saman voru notuđ náttljósarolía og lýsi. Líkaminn notar fitusýrurnar úr ţessum tveimur olíum (GLA og EPA) til ađ búa til ákveđin prostaglandín og leukotríen en ţau efni hafa áhrif á bólgumyndun og sársauka.2 Viđ inntöku GLA geta komiđ fram jákvćđ áhrif á sjúkdóma sem tengjast bólgumyndun ţví sýran ţynnir út blóđiđ og víkkar út ćđarnar.3 Rannsókn var gerđ í Glasgow fyrir nokkrum árum međal liđagigtarsjúklinga. Alls tóku 52 sjúklingar ţátt og um var ađ rćđa ţrenns konar hylki, međ náttljósarolíu, međ náttljósarolíu + lýsi og međ sólblómaolíu til ţess ađ sjá Placebo áhrifin. Í ljós kom ađ 94% ţeirra sem fengu náttljósarolíu og 100% ţeirra sem fengu náttljósarolíu + lýsi fundu fyrir verulegum bata. Ađ vísu voru einnig 33% af ţeim sjúklingum sem fengu sólblómaolíu sem fannst ţeim hafa fariđ fram en ţađ er ţó töluvert lćgra hlutfall. Einnig er athyglisvert ađ sjúklingarnir fundu fyrir ţessum mikla bata ţó ađ hinn venjulegi lyfjaskammtur ţeirra hafi veriđ minnkađur töluvert. Ţađ er mjög áhugaverđ niđurstađa, sérstaklega ţar sem aukaverkanir liđagigtarlyfja eru miklar og sjúklingar myndu gefa mikiđ fyrir ađ losna viđ ţćr.6
Heimildir:- Laxarides, Linda. The Nutritional Health Bible. Thorsons 1997
- www.consumerlab.com
- www.vitaminworld.com
- Journal of Advancement in Medicine. Vol 3, nr.3. Haust 1990
- Reviews in Contemporary Pharmacotherapy, GLA. Editors: S.Johnson og F.N. Johnson. Vol 1, nr.1, 1990.






