Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Ćtihvönn

Íslenska ćtihvönnin hefur merka sögu og hefđ ađ baki. Hvönnin var einkum talin góđ fyrir ţá sem voru ađ ná sér eftir erfiđ veikindi, til ađ fá aukiđ ţrek og kraft. Einnig var hvönnin notuđ viđ meltingartruflunum s.s. krampa og vindgangi og gegn kvillum í lifur. Hvönnin var talin góđ til ađ losa slím úr öndunarfćrum og var hún notuđ viđ lungnakvillum. Hún var notuđ til ađ grćđa sár og hvannafrć ţóttu góđ viđ krabbameinum. Heimildir eru fyrir notkun jurtarinnar gegn svarta dauđa á 15. öld og einnig var hún notuđ gegn spönsku veikinni fimm öldum síđar.

 

Rannsóknir á Íslandi sýna mikla virkni íslenskra lćkningajurta

Vísindamenn hafa lengi gengiđ í skóla náttúrunnar og reynt ađ lćra af henni á hvern hátt jurtir verjast sýklum (veirum, sveppum og bakteríum) og einnig skordýrum og stćrri dýrum. Jurtirnar hafa ţróađ efnavopn í ţessari baráttu og hafa menn viljađ lćra ađ nýta sér ţau. Lyfjaiđnađurinn á rćtur sínar ađ rekja til vinnslu slíkra náttúruefna og enn eru nánast öll krabbameinslyf og meiri hluti sýklalyfja unnin beint eđa óbeint úr náttúrunni.

Fyrir allmörgum árum hófust rannsóknir á lćkningajurtum viđ Raunvísindastofnun Háskólans. Niđurstöđur rannsóknanna sýna ađ í hvannafrćjum eru líffrćđilega virk efni sem styrkja ónćmiskerfiđ. Sömuleiđis eru í ţeim afar virk efni gegn algengum bakteríum sem valdiđ geta hvimleiđum kvillum. Í hvannafrćjum eru líka terpen sem hefta vöxt krabbameinsfruma á ţann hátt ađ hreinsa út sjúkar og skemmdar frumur. Einnig eru í ţeim efni sem nefnast fúranokúmarín sem í tilraunaglösum ráđast á krabbameinsfrumur og hefta ţannig vöxt krabbameins. Ţessi efni eru einnig afar virk gegn veirum. Niđurstöđur Margretar Guđnadóttur prófessors eru m.a. ţćr ađ Angelica vinnur á veirum, m.a. kvefveirum og jafnvel veirum (coxsackie) sem fá lyf vinna á.

 

Áhrif jurtaveigar úr ćtihvannafrćum á 15 sjálfbođaliđa voru könnuđ áriđ 2001 og var reynsla ţessara sjálfbođaliđa mjög í samrćmi viđ ţau áhrif sem lýst er í lćkningajurtabókum, aukinn kraftur og vellíđan, jákvćđ áhrif á maga og meltingu o.s.frv.

 

Breytileiki í virkni plantna eftir vaxtarstöđum hefur veriđ rannsakađur. Einnig hefur virkni efna úr íslenskum lćkningajurtum veriđ borin saman viđ erlendar náttúruvörur úr sams konar jurtum sem vaxa á suđlćgari slóđum. Virkni íslensku jurtanna hefur reynst mun meiri. Ţetta stađfestir tiltrú manna á ćtihvönninni allar götur frá víkingatímanum. Nú er framleidd jurtaveig úr ćtihvannafrćjum sem markađssett er undir nafninu Angelica. Ţessi jurtaveig er notuđ til ađ auka starfsţrek, fyrirbyggja umgangspestir og auka vellíđan. Einnig gagnast hún til ađ ná upp ţreki og heilsu eftir veikindi.

Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.


Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Skođa Biotta nánar

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta