Avena sativa
Flestir ef
ekki allir Íslendingar ţekkja hafragrautinn og hafa sennilega
einhvern tímann á ćvinni borđađ hann. Margir bera hann sér til
munns á hverjum morgni, öđrum finnst lítiđ til hans koma.
Hollustu grautsins getur ţó enginn neitađ, hann er góđur fyrir
meltinguna og blóđsykurinn helst í betra jafnvćgi viđ neyslu á
grófu korni eins og höfrum (flókin kolvetni).
Minna ţekktir eru líklega grćnir hafrar. Ţađ eru nákvćmlega sömu hafrarnir en ţeir eru tíndir til vinnslu áđur en korniđ hefur náđ fullum ţroska. Á ţessu ákveđna ţroskastigi innihalda hafrar nefnilega efni sem hafa gríđarlega góđ áhrif á taugakerfiđ. Langt aftur í aldir hafa ţessir óţroskuđu hafrar veriđ notađir viđ svefnleysi, streitu, kvíđa og almennri taugaţreytu. Fór fólk ţá gjarnan í hafraböđ og reyndust ţeir ţá einnig hafa góđ áhrif á ýmis húđvandamál s.s. exem og brunasár. Te gert úr höfrum var ráđlagt viđ liđverkjum og gegn bjúgi. Mćlt er međ tinktúru úr grćnum höfrum til ađ komast yfir fráhvarfseinkenni tóbaks.1
Í hafrakornum er ađ finna svokallađa alkalóíđa og sapónína, efni sem talin eru gefa höfrum ţessa virkni. Til ţess fyrrnefnda heyra m.a. gramín og avenín en ţess síđastnefnda avenakósíđar A og B.2 Kornin sjálf eru rík af járni, mangan og sínki en stráin innihalda mikiđ af silica (kísil). Rannsókn sem gerđ var áriđ 1974 međ tinktúru úr grćnum höfrum leiddi í ljós ađ hún gćti reynst vel viđ nikótínfráhvarfi og sem ađstođ viđ ađ hćtta ađ reykja.4 Fyrst og fremst eru grćnir hafrar notađir viđ svefnleysi og streitu og er ţá gjarnan notuđ jurtaveig úr grćnum höfrum sem varđveitir virku efnin mjög vel og er ţví einstaklega góđur kostur til ađ nota gegn streitu og svefntruflunum.
Viđ húđvandamálum má gera sér eins konar hafraseyđi, međ ţví ađ láta sokk međ nokkrum msk. af höfrum hanga í bununni, eđa bara leggja hann í bađiđ, á međan rennur í kariđ. Til ađ laga hafrate eđa seyđi er sođiđ upp á grćnum höfrum, hafrarnir síđan síađir frá eftir nokkrar mínútur og teiđ drukkiđ ýmist yfir daginn eđa rétt fyrir svefninn.5 Notađ er sem nemur 1 msk á bolla.
Heimildir:- Weiss RF. Herbal Medicine. Gothenburg, Sweden: Ab Arcanum, 1988, 2878.
- Mills SY. Out of the Earth: The Essential Book of Herbal Medicine. Middlesex, UK: Viking Arcana, 1991, 5102.
- Wichtl M. Herbal Drugs and Phytopharmaceuticals. Boca Raton, FL: CRC Press, 1994, 968.
- Anand CL. Effect of Avena sativa on cigarette smoking. Nature 1974;233:496.
- Wichtl M. Herbal Drugs and Phytopharmaceuticals. Boca Raton, FL: CRC Press, 1994, 968.






