Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Engifer / lat: Zingiber officinale

Engiferrótin er eiginlega sá hluti af stofni jurtarinnar sem vex neđanjarđar en rótarnafniđ hefur fest sig í sessi í daglegu tali. Ţessi jurt er upprunin í S-Asíu og hefur veriđ notuđ sem krydd og lyf í ţúsundir ára. Arabískir kaupmenn fluttu jurtina frá Kína og Indlandi og seldu til Grikkja og Rómverja. Verslunarbćkur frá 200 e.Kr. sýna ađ engifer skilađi miklum hagnađi til Rómverska heimsveldisins. Í kínverskum lćkningabókum frá 400 f.Kr. kemur fram ađ engifer var notađur viđ ógleđi, niđurgangi, magaverkjum, kóleru, tannverkjum, blćđingum og gigt. Seinna fóru kínverskir grasalćknar ađ nota engifer viđ ýmsum vandamálum í öndunarvegi, ţ.á.m. hósta og kvefi á byrjunarstigi.

Á 9. áratug síđustu aldar veitti vísindamađur ađ nafni D. Mowrey ţví athygli ađ hylki međ engifer drógu úr ógleđi hjá sér, sem hann ţjáđist af vegna flensu. Ţetta leiddi hann til ađ framkvćma fyrstu tvíblindu rannsóknina á engifer. Ţýsk heilbrigđisyfirvöld viđurkenndu fljótlega jurtina sem međferđ viđ meltingartruflunum og ferđaveiki (t.d. bílveiki og sjóveiki). Á međan flest ógleđilyf virka gegnum heilann og innra eyra, virkar engifer ađeins á magann.

 

Í tvíblindri rannsókn á sjóveiki sem var gerđ á 79 sjóliđum kom í ljós ađ 1 g af engifer hafđi áhrif á uppköst og kaldan svita en hafđi ekki áberandi áhrif á ógleđi og svima. Ađ auki var gerđ tvíblind rannsókn á 1489 farţegum um borđ í skipi og sýndi sú rannsókn ađ engifer virkađi jafn vel og algeng sjóveikislyf eins og cinnarizine, meclozin, scopolamine o.fl. Enn ein tvíblind rannsókn var gerđ á 70 ófrískum konum og varđ niđurstađan sú ađ ógleđi og uppköst minnkuđu töluvert viđ inntöku á 250 mg af möluđum engifer, ţrisvar á dag í fjóra daga. Engar afgerandi aukaverkanir greindust. Rétt er ađ benda á ađ ekki hafa veriđ gerđar rannsóknir sem hrekja eđa styđja öryggi engifers á međgöngu.

Engifer hefur í nokkur ár veriđ rannsakađur viđ liđverkjum og bólgum og hafa ţessar rannsóknir stađfest virkni hans gegn ţessum ţrautum. Stađlađ engiferţykkniđ hefur hjálpađ mörgum liđagigtarsjúklingum og íţróttafólki. Engiferinn hefur ţann kost umfram hefđbundin gigtarlyf ađ hann veldur ekki magasárum eđa öđrum óţćgindum.

 

Ţar sem engifer er mjög hitagefandi og góđur fyrir blóđstreymiđ er hann tilvalinn fyrir kulvísa. Hćgt er ađ drekka hann ferskan í heitu vatni en einnig er hann ađ finna í mörgum Yogi teblöndum. Má ţar sérstaklega benda á engifer-sítrónu blönduna.

Ţeir sem hafa fengiđ gallsteina eđa eru á leiđ í ađgerđ ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni eđa grasalćkni áđur en engifer er notađur.

 

Heimildir:

  1. Holtmann S, Clarke AH, Scherer H, et al. The anti-motion sickness mechanism of ginger. Acta Otolaryngol. 1989;108:168174.
  2. Grontved A, Brask T, Kambskard J, et al. Ginger root against seasickness. A controlled trial on the open sea. Acta Otolaryngol. 1988;105:4549.
  3. Schmid R, Schick T, Steffen R, et al. Comparison of seven commonly used agents for prophylaxis of seasickness. J Travel Med.1994;1:203206.
  4. Vutyavanich T, Kraisarin T, Ruangsri R. Ginger for nausea and vomiting in pregnancy: randomized, double-masked, placebo-controlled trial. Obstet Gynecol. 2001;97:577582.

Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.



Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíđa:

Frćđsla Bćtiefni Jurtir Engifer / lat: Zingiber officinale

Toppmynd

Nánar um Biotta

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta