Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Freyspálmi / e: Saw Palmetto / lat: Sabal serrulata

Freyspálmi er ţekktur undir tveimur latneskum nöfnum, Sabal serrulata og Serenoa rebens. Fituleysanlegt ţykkni sem búiđ er til af berjum freyspálma hefur gagnast einstaklega vel viđ góđkynja stćkkun blöđruhálskirtils (GSB). Virkni ţess byggist á ţví, ađ efni sem í freyspálmanum eru, hemja ensímiđ sem breytir testósteróni í dihydrótestósterón (DHT)1, auk ţess sem ţau varna ţví ađ DHT bindist viđ bindistađi sína.1 Margar rannsóknir stađfesta framúrskarandi virkni ţessarar jurtar og benda ţćr til ţess ađ breytingar til hins betra geta komiđ fram eftir 4-6 vikur hjá 2 af hverjum 3 mönnum sem taka freyspálma inn.2, 3, 4, 5

Ţriggja ára ţýsk rannsókn leiddi í ljós, ađ ef tekin voru 160 mg af freyspálma tvisvar á dag fćkkađi nćturferđum á klósettiđ hjá 73% sjúklinganna auk ţess sem ţvagflćđi batnađi töluvert.6 Í breskri rannsókn á 250 sjúklingum á aldrinum 35-70 ára, dró úr einkennum hjá 94% sjúklinga viđ notkun freyspálma.1 Í annarri rannsókn sem 305 sjúklingar tóku ţátt í og ţeim gefinn 160 mg skammtur tvisvar á dag, fundu 83% ţátttakenda fyrir bata eftir 45 daga og eftir 90 daga var hlutfalliđ komiđ upp í 88%.7

Freyspálmi virkar á sama hátt og algengustu lyf sem gefin eru viđ góđkynja stćkkun blöđruhálskirtils. Helstu kostir sem hann hefur fram yfir lyfin er ađ hann er ódýrari, virkar á styttri tíma (4-6 vikum í stađ 10-12 mánađa)1 og honum fylgja ekki ţćr aukaverkanir sem oft fylgja lyfjunum (svimi, getuleysi og minnkandi kynhvöt)6. Algengasti dagsskammtur sem gefinn er af freyspálma eru 320 mg af ţykkni sem inniheldur 85-95% fitusýrur og steróla. Óţarft er ađ fara yfir ţađ magn, ţar sem ekki hefur mćlst betri árangur ţó skammturinn sé stćrri.8

Heimildir:
  1. Murray, M og Pizzorno, Joseph. Encyclopedia of Natural Medicine. Prima publishing, 1998.
  2. E. Emili, M. Lo Signo and U. Perone, Clinical Trial of a New Drug for Treating Hypertrophy of the Prostate (Permixon), Urologia 50 (1983): 1042-8.
  3. S. Boccafoschi and S. Annoscia, Comparison of Serenoa repens Extract with Placebo by Controlled Clinical Trial in Patients with Prostatic Adenomatosis, Urologia 50 (1983): 1257-68.
  4. G. Champlault, J.C. Patel and A.M Bonnard, A Double-blind Trial of an Extract of the Plant Serenoa repens in Benign Prostatic Hyperplasia, Br. J Clin Pharmacol 18 (1984): 461-2.
  5. Marks Ls, Partin AW, Epstein JI, et al. Effects of a saw palmetto herbal blend in men with symptomatic benign prostatic hyperplasia. J Urol. 2000; 163: 1451-1456.
  6. Bach D. Medikamentose Langzeitbehandlung der BPH. Ergebnisse einer prospektiven 3-Jahres-Studie mit dem Sabalextrakt IDS 89. Urologe (B). 1995; 35:178-183.
  7. J. Braeckman, The Extract of Serenoa repens in the Treatment of Benign Prostatic Hyperplasia: A Multicenter Open Study, Curr Ther Res 55 (1994): 776-85.
  8. www.consumerlab.com
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.


Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíđa:

Frćđsla Bćtiefni Jurtir Freyspálmi / e: Saw Palmetto / lat: Sabal serrulata

Toppmynd

Nánar um Hale & Hearty

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta