Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Kelp / ţari

Íslenska orđiđ ţari er í raun samheiti yfir margar gerđir ţörunga (e: seaweed) en á međal ţeirra eru söl, kombu, wakame og nori. Íslensku sölin hafa fengiđ viđurnefniđ sjávarnasl og eru borđuđ ţurrkuđ (međ smjöri fyrir lengra komna!!), kombu er gjarnan sođiđ međ baunum til ađ draga úr loftmyndandi áhrifum ţeirra, wakame notađ í salöt og nori í sushi.

Hins vegar eru brúnţörungar af ćttinni Laminariaceae notađir eru til framleiđslu á ţaratöflum. Í ţessum ţara (e: kelp) er nokkuđ af B-vítamíni en hann er sérstaklega steinefnaríkur og inniheldur m.a. jođ, kalíum, magnesíum, kalk og járn. Jođ er mjög mikilvćgt fyrir heilbrigđa starfsemi skjaldkirtils og getur skortur á jođi valdiđ ţví ađ kirtillinn verđi vanvirkur. Vanvirkur skjaldkirtill veldur m.a. mikilli ţreytu, lágum líkamshita, harđlífi, ţunglyndi, stćkkun á kirtlinum (kúla á hálsinum), frjósemisvanda og hárlosi, einnig á augabrúnum. Ţó fólk finni fyrir einhverju af ofangreindum kvillum, ţarf ţađ alls ekkert ađ tengjast skjaldkirtlinum. Best er ađ fara í rannsókn.

Jođskortur á Íslandi

Jođskortur og vanvirkur skjaldkirtill er ţekkt vandamál í ţróunarlöndum sem liggja fjarri sjó og afskekktum fjallahéruđum. Mikiđ er af jođi í fiski og hefur jođskortur ţví ekki hrjáđ okkur Íslendinga fram ađ ţessu, en nýleg rannsókn Manneldisráđs sýnir ađ fiskneysla Íslendinga hefur minnkađ um 50% á 12 árum. Ungt fólk hérlendis borđar orđiđ svo lítiđ af fiski ađ hćtta er á jođskorti hjá yngri aldurshópum, einkum ungum stúlkum, sem borđa ađ jafnađi ađeins 15 g af fiski á dag og fá ţví ađeins um 2/3 af ţví jođi sem ţćr ţurfa á ađ halda. Ţar sem jođskortur getur haft áhrif á andlegan og líkamlegan ţroska, eru ţaratöflur kjöriđ bćtiefni fyrir ţá sem borđa lítiđ af fiski.

Í ţara eru einnig góđ efni fyrir heilavefinn, himnur sem umlykja heilann, skyntaugar og mćnuna. Eins styrkir hann neglur og ćđar. Hann er steinefnaríkur og er stundum ráđlagđur gegn hárlosi. Ţeir sem eiga viđ, eđa telja sig eiga viđ skjaldkirtilsvandamál ađ stríđa ćttu ađ leita til lćknis.

Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.


Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Doves

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta