Fosfór
Fosfór er 1% af ţyngd líkamans, ţar af 80-90% í beinum og tönnum. Fosfór er nauđsynlegur fyrir myndun beina og tanna, frumuvöxt, samdrátt hjartavöđva og heilbrigđa nýrnastarfsemi. Fosfór á ţátt í heilbrigđri starfsemi tauga og heila. Jafnframt hjálpar hann líkamanum viđ nýtingu vítamína úr fćđu og umbreytingu fćđunnar í orku. Fosfór, kalk og magnesíum ţurfa ađ vera í réttu hlutfalli, ţví of mikiđ eđa of lítiđ af einhverju ţeirra hefur slćm áhrif á líkamann. Gosdrykkir međ kolsýru innihalda fosfór. Mikil neysla gosdrykkja getur raskađ ţví jafnvćgi sem ţarf ađ vera milli fosfórs, kalks og magnesíum.
Fosfór er ađ finna í kjöti, fiski, eggjum, heilkorni, grćnmeti, mjólkurafurđum, ţurrkuđum ávöxtum, hnetum, frći og gosdrykkjum međ kolsýru. Sýrubindandi lyf, ál, magnesíum og of mikiđ af járni eru gagnvirk fosfór.
Skortur á fosfór er fátíđur ţar sem ţađ er ađ finna víđa í fćđunni. Einkenni skorts eru ţreyta, beinverkir, kvíđi, minnkuđ matarlyst, slappleiki, dofi, skjálfti, beinkröm, einbeitingarleysi, minnkuđ kyngeta og ígerđ í tannvegi.
Ráđlagđir dagsskammtar eru:
- ungbörn ađ 6 mánađa aldri: 280 mg
- 6- 12 mánađa: 420 mg
- börn 1 - 10 ára 600 mg
- karlar 11-18 ára aldri: 900 mg
- karlar 19 ára og eldri: 600 mg
- konur 11-18 ára: 900 mg
- konur 19 ára og eldri: 600 mg
- ţungađar konur: 900 mg
- konur međ barn á brjósti: 900 mg






