Glúkósamín
Glúkósamín er efni sem byggir upp brjósk og gagnast ţví viđ slitgigt og brjóskeyđingu. Sýnt hefur veriđ fram á ađ ţó líkaminn geti framleitt glúkósamín úr blóđsykri dugar ţađ ekki til. Međ inntöku glúkósamíns má örva myndun brjósks á tvennan hátt. Í fyrsta lagi veldur aukiđ frambođ glúkósamíns aukinni framleiđslu, ţví hrađastýringin fer eftir frambođi glúkósamíns. Í öđru lagi verđur aukin upptaka á öđrum efnum sem ţarf til framleiđslunnar.
Ekki ţýđir ađ gefa aukiđ magn galaktósamíns eđa NAG ef ekki fylgir aukiđ magn glúkósamíns ţar sem ţađ stýrir öllu ferlinu. Tilraunir á brjóskskemmdum bćđi í frumurćkt og dýrum og rannsóknir á slitgigtarsjúklingum hafa sýnt ađ efniđ er mjög ganglegt viđ verkjum og stirđleika í liđum slitgigtarsjúklinga og ţolist almennt ólíkt betur en bólgueyđandi gigtarlyf. Ţađ er taliđ jafnöflugt í ađ minnka slitgigtareinkenni. Rannsóknir hafa einnig sýnt ađ glúkósamín hindrar niđurbrot brjósks og örvar nýmyndun ţess ásamt ţví ađ minnka verki og auka hreyfanleika liđa.
Glúkósamín er í hópi efna sem líkaminn framleiđir sjálfur og nýtir sér til gagns en lýtur samt ţeim lögmálum ađ inntaka ţess í formi fćđubótar eykur frambođ ţess í líkamanum međ jákvćđum árangri. Aukiđ magn af glúkósamíni eykur viđgerđarhćfni líkamans umfram ţađ sem annars vćri mögulegt. Ţar sem efniđ er ekki lyf í ţeim skilningi, er ţađ oft lengur ađ verka en lyf en hefur sömu lokaáhrif án ţeirra aukaverkana sem lyfin hafa. Notkun NSAID lyfja í lengri tíma virđist draga úr getur líkamans til ađ endurnýja ţá vefi sem glúkósamín örvar nýmyndun á.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.





