Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Hvítlaukur

Hvítlaukur hefur veriđ rćktađur í Miđ-Austurlöndum í yfir 5000 ár og er minnst á hann í bókmenntum Grikkja, Babylóníumanna, Egypta og gyđinga. Taliđ er ađ ţrćlarnir sem byggđu pýramídana í Egyptalandi hafi borđađ hvítlauk til ađ halda heilsu og ţreki. Hann var einnig rćktađur í Kína til forna enda er hann ćttađur frá Miđ-Asíu, trúlega ţađan sem Kirgisistan er í dag.

Hvítlaukur hefur veriđ notađur til lćkninga í a.m.k. 3500 ár og var skilgreindur sem lyf af Hippókratesi, föđur lćknisfrćđinnar. Aristóteles gerđi ţađ einnig. Í hvítlauk er ađ finna efniđ metýl allýl trísúlfíđ sem lćkkar blóđţrýsting međ ţví ađ víkka út ćđaveggina. Ţađ hindrar einnig ađ blóđflögur kekkist sem minnkar líkur á blóđtappa og fyrirbyggir hjarta- og ćđasjúkdóma. Ţá lćkkar ţađ hlutfall LDL (vonda) kólesteróls í ćđum og hefur góđ áhrif á meltinguna. Hvítlaukur styrkir einnig ónćmiskerfiđ og er ţví ekki síđur mikilvćgur fólki međ langvarandi sjúkdóma eins og t.d. krabbamein. Hvítlaukur inniheldur einnig efniđ allín sem breytist í allisín fyrir tilstuđlan ensímsins allínasa ţegar hvítlauks er neytt. Allisín hefur sýkladrepandi áhrif og er ţví hvítlaukur náttúrulegt sýklalyf. Hvítlaukur var mikiđ notađur í fyrri heimsstyrjöldinni á sár og til ađ fyrirbyggja holdsveiki.

Hvítlaukur hefur reynst vel viđ ýmsum sveppasýkingum s.s. á fótum og í leggöngum. Hann er ţá bćđi tekinn inn og borinn á sýktu svćđin. Margt bendir til ađ hvítlaukur hafi einnig vírusdrepandi eiginleika og er ţví tilvalinn í baráttunni gegn kvefi og inflúensu.

Hvítlauksolía er mjög góđ fyrir hjartađ og ristilinn og hefur einnig hjálpađ mörgum gigtarsjúklingum. Einfalt er ađ laga olíuna: afhýđiđ hvítlauksrif og setjiđ í 250 ml af ólífu- eđa kanólaolíu. Fjöldi hvítlauksrifja fer eftir smekk. Olían geymist best í kćli í allt ađ einn mánuđ. Hana má nota á salöt, til ađ léttsteikja mat eđa 1 msk tekin beint inn. Steinselja, fennelfrć, kúmen, minta og brenndar kaffibaunir draga úr lyktinni sé ţađ borđađ međ eđa eftir ađ hafa neytt hvítlauks.

Til ađ lćkningarmáttur hvítlauksins nýtist sem best er ráđlagt ađ borđa hvítlauksrifin fersk og helst daglega. Einnig er hćgt ađ taka hann inn á bćtiefnaformi, ýmist í töflum, hylkjum eđa dropum.

Sterkar hvítlaukstöflur

Hvítlaukstöflur úr ferskum hvítlauk er ţeim mun virkari sem ţćr innihalda meira af virka efninu ALLICIN. Bestur árangur í rannsóknum hefur náđst međ töflum sem innihalda yfir 3,6 mg af allicin. Hvítlaukstöflurnar frá Heilsu innihalda 4 mg af allicin í hverri töflu. Ţćr eru engu ađ síđur lyktarlausar.

Heimild:
  • Prescription for nutritional healing. James F. Balch, Phyllis A. Balch.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.


Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Yogi

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta