Kítosan / e: Chitosan
Kítósan er trefjaefni sem unniđ er úr skelfiski. Ţađ sama gildir um ţessar trefjar og margar ađrar, ađ líkaminn meltir ţćr lítiđ sem ekkert. Ţađ hefur hins vegar ţann eiginleika ađ á leiđ sinni í gegnum meltingarfćrin getur ţađ bundist fitu sem borđuđ hefur veriđ og losađ hana út međ hćgđum. Vegna ţessa eiginleika er ţađ notađ bćđi til ađ lćkka kólesteról og í baráttunni viđ aukakílóin. Samkvćmt rannsóknum japanskra vísindamann virđist neysla C-vítamíns međ kítósani auka virkni ţess til ađ lćkka kólesteról.1
Samkvćmt annarri rannsókn sömu vísindamanna gerir kítósan líkamanum erfitt fyrir ađ taka upp og nýta sér fitu. Sem fyrr segir bindur kítósaniđ fituna og fjarlćgir hana, fyrirbyggir ţannig ađ líkaminn taki hana upp og bćti henni utan á okkur. Ţessi rannsókn bendir ţví til ađ ţađ sé góđ hjálp í baráttunni viđ aukakílóin.2 Ţađ hefur veriđ stađfest međ fleiri rannsóknum. T.d. var í einni rannsókn fylgst međ 59 "yfirvigtar" einstaklingum í tvíblindri prófun. Var helmingur ţeirra látinn taka 1.500 mg af kítósani fyrir hádegismat og kvöldmat, en hinn helmingur fólksins fékk lyfleysu. Fólkiđ ţurfti ekki ađ gera neinar breytingar á matarćđi sínu. Ađ 8 vikum liđnum hafđi kítósan-hópurinn létst um liđlega 1 kg ađ jafnađi, en ţeir sem fengu lyfleysuna ţyngst um 1,5 kg á sama tíma.3 Raunar hafa ekki allar rannsóknir skilađ sama góđa árangrinum, en í ţeim hafa veriđ notađir allmiklu minni skammtar af kítósani.
Áhrif kítósans á kólesteról hefur veriđ rannsakađ nokkuđ og sýna flestar rannsóknir ađ neysla kítósans lćkki kólesteról, eins t.d. rannsóknin sem frá er greint í tímaritinu Atherosclerosis.4 Rannsókn á fullorđnum karlmönnum í Japan sýndi ađ 3-6 g af kítósani á dag, hafđi eftir 2 vikur lćkkađ kólesteról um 6% og aukiđ góđa kólesteróliđ (HDL) um 10%.5
Aukaverkanir
Nauđsynlegt er ađ vita ađ langtímaneysla stórra skammta af kítósani fjarlćgir ekki bara óćskilega fitu, heldur getur ţađ einnig rćnt líkamann fituleysanlegu vítamínunum A, D, E og K. Einnig benda rannsóknir til ţess ađ ţađ geti hugsanlega rćnt steinefnum eins og kalki, magnesíum og seleni. Ţeir sem ţví nota stóra skammta af kítósani í lengri tíma, ćttu jafnframt ađ tryggja líkamanum nćgilegt magn af ofangreindum bćtiefnum. Barnshafandi konur ćttu ekki ađ nota kítósan.
Heimildir:
- Kanauchi O, Deuchi K, Imasato Y, et al. Increasing effect of a chitosan and ascorbic acid mixture on fecal dietary fat excretion. Biosci Biotechnol Biochem. 1994;58:1617-1620.
- Schiller RN, Barrager E, Schauss AG, et al. A randomized, double-blind, placebo-controlled study examining the effects of a rapidly soluble chitosan dietary supplement on weight loss and body composition in overweight and mildly obese individuals. J Am Nutraceutical Assoc. 2001;4:42-49.
- Schiller RN, Barrager E, Schauss AG, et al. A randomized, double-blind, placebo-controlled study examining the effects of a rapidly soluble chitosan dietary supplement on weight loss and body composition in overweight and mildly obese individuals. J Am Nutraceutical Assoc. 2001;4:42-49.
- Ormrod D, Holmes CC, Miller TE. Dietary chitosan inhibits hypercholesterolaemia and atherogenesis in the apolipoprotein E-deficient mouse model of atherosclerosis. Atherosclerosis. 1998;138:329-334.
- Maezaki Y, Tsuji K, Nakagawa Y, et al. Hypocholesterolemic
effect of chitosan in adult males. Biosci Biotech Biochem
1993;57:1439-44
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






