Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

L-karnitín

Karnitín eđa L-karnitín er amínósýra sem líkaminn getur m.a. myndađ úr amínósýrunni lýsín. Ţessi amínósýra sér um ađ flytja fitusýrur til hvatbera allra frumna líkamans ţar sem ţeim er breytt í orku. Viđ venjulegar ađstćđur og međ réttu matarćđi getur líkaminn framleitt nógu mikiđ af karnitíni en ef orkunotkunin er mikil, t.d. hjá börnum, ţunguđum konum og viđ brjóstagjöf, getur ţörfin orđiđ meiri en líkaminn rćđur viđ.

Karnitín finnst í vöđvum líkamans og var fyrst einangrađ úr kjöti áriđ 1905 en mikilvćgi ţess fyrir mannslíkamann uppgötvađist hins vegar ekki fyrr en um 1950.1,2,3 Eftir ađ hópur vísindamanna hafđi stađfest ţađ sem mikilvćgan ţátt í vexti mjölmađks hófu ţeir rannsókn á efninu í mannslíkamanum. Ţeir komust fljótlega ađ ţeirri niđurstöđu ađ karnitín vćri nauđsynlegt fyrir fituniđurbrot til orkumyndunar. Til ţess ađ fitusýrurnar komist inn fyrir frumuveggina ađ hvatberum, ţarf karnitín ađ vera til stađar sem flutningsefni. Verđi skortur á ţví minnkar fitusýrumagn í frumunum sem svo leiđir af sér minni fitubrennslu og orkumyndun. Karnitín gegnir einnig öđrum lífeđlisfrćđilegum hlutverkum, s.s. nýtingu á amínósýrum viđ föstu, svelti og áreynslu. Hvatinn sem ţarf til myndunar á karnitíni er til stađar í lifur, nýrum og heila. Viđ fćđingu er virkni hans ađeins 12% af ţví sem gerist hjá fullorđnum, viđ 3ja ára aldur er hún orđin um 30% og nćr loks fullri virkni viđ 15 ára aldur.

Mjólk og kjöt eru ţćr fćđutegundir sem innihalda einna mest af karnitíni og ţví rauđara sem kjötiđ er, ţeim mum meira af karnitíni er í ţví. Korn, ávextir og grćnmeti innihalda lítiđ sem ekkert karnitín. Líkaminn framleiđir karnitín sjálfur úr amínósýrunum lýsin og metíónín en einnig ţarf járn, C-vítamín, B-3 og B-6 vítamínađ vera til stađar í nćgu magni. Skortur á einhverjum af ţessum bćtiefnum heftir framleiđslu á karnitíni. Ţar sem líkami ungbarna getur ekki framleitt nćgjanlegt karnitín er nauđsynlegt fyrir ţau ađ fá ţađ međ móđurmjólkinni eđa í ţurrmjólk (ath. ekki allar gerđir ţurrmjólkur innihalda karnitín). Skortur á karnitíni á fullorđinsaldri er mjög sjaldgćfur, meira ađ segja hjá grćnmetisćtum, ţar sem tiltölulega auđvelt er fyrir líkamann ađ framleiđa ţađ.

Karnitín virđist gegna mikilvćgu hlutverki í hjartanu. Rannsókn var gerđ á fólki međ sykursýki og of háan blóđţrýsting og voru ţví gefin 4 g af L-karnitíni á dag í 45 vikur.4 Óreglulegur hjartsláttur og óeđlileg hjartastarfsemi hafđi minnkađ til muna miđađ viđ ţá sem ekkert karnitín fengu. Í tvíblindri rannsókn á hjartabilun var notađ annađ form af karnitíni, propionyl-L-carnitine, eđa PC. Ţar voru notuđ 500 mg af PC á dag í 6 mánuđi og leiddi ţađ til 26% aukningu á áreynslugetu.5 Í annarri rannsókn á fólki međ sama hjartavandamál voru 1,5 g gefin í 15 daga og jókst ćfingaţol um 21% og 45% aukning varđ á súrefnisnotkun.6

Rannsóknir sýna ađ minni líkur eru á vöđvaeymslum viđ inntöku á L-karnitíni.7 Hins vegar hefur ekki veriđ sannađ ađ aukin L-karnitínneysla auki vöđvamassa eđa árangur í íţróttum.8 Í tvíblindri rannsókn fékk fólk međ langvarandi lungnasjúkdóma 2 g af L-karnitín tvisvar á dag í 2-4 vikur eđa lyfleysu.9,10 Ţeir sem fengu karnítín reyndust í lok tilraunarinnar vera međ minni óţćgindi frá öndun viđ áreynslupróf.

Ţeir sem eru ađ taka lyf, sérstaklega flogaveikilyf, ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en fariđ er ađ nota L-karnitín.

Heimildir

  1. Bremer J, Carnitine-metabolism and function. Physiol Rev 63, 1420-1480, 1983.
  2. Bamji MS, Nutritional and health implications of lysine carnitine relationship. Wld Rev Nutr Diet 44, 185-211, 1984.
  3. Borum PR, Carnitine. Ann Rev Nutr 3, 233-259, 1983.
  4. Anand I, Chandrashenkhan Y, De Giuli F, et
    al. Acute and chronic effect of propionyl-L-carnitine on the
    hemodynamics, exercise capacity and hormones of patients with
    congestive heart failure. Cardiovasc Drugs Ther 1998;12:291-9.
  5. Giamberardino MA, et al. Effects of
    prolonged L-carnitine administration on delayed muscle pain and CK
    release after eccentric effort. Int J Sports Med 1996;17:320-4.
  6. Green RE, Levine AM, Gunning MJ. The effect
    of L-carnitine supplementation on lean body mass in male amateur body
    builders. J Am Dietet Assoc 1997;(suppl):A-72.
  7. Murray MT. The many benefits of carnitine. Am J Natural Med 1996;3:6-14 [review].
  8. Columbani P, Wenk C, Kunz I, et al. Effect
    of L-carnitine supplementation on physical performance and energy
    metabolism of endurance-trained athletes: a double blind crossover
    field study. Eur J Appl Physiol 1996;73:434-9.
  9. Dal Negro R, Pomari G, et al. L-carnitine
    and rehabilitative respiratory physiokinesitherapy: metabolic and
    ventilatory response in chronic respiratory insufficiency. Int J Clin
    Pharmacol Ther Toxicol 1986;24:453-6.
  10. Dal Negro R, Turco P, Pomari C, De Conti F.
    Effects of L-carnitine on physical performance in chronic respiratory
    insufficiency. Int J Clin Pharmacol Ther Toxicol 1988;26:269-72.

Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.



Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Yogi

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta