Vítamín
Vítamín eru skilgreind sem lífræn efni er líkaminn þarfnast í litlu mæli og verður að nálgast þau frá umhverfinu af því að vítamínin verða ekki til í líkamanum eða þá að myndun þeirra þar er ekki nægjanleg til að viðhalda heilsu manna. Aðaluppspretta vítamína er að finna í fæðunni með einni undantekningu; D-vítamín verður til í mannslíkamanum fyrir tilstuðlan sólarljóss (útfjólublárra geisla).






