B-15 vítamín / pangamínsýra
Pangamínsýra er einnig ţekkt undir nafninu vítamín B-15, ţótt deildar meiningar séu um hvort hćgt sé ađ skilgreina hana sem vítamín enda hefur hún ekki fengiđ viđurkenningu sem slík. Hún er vatnsleysanleg og samvirk međ A- og E-vítamíni. Rannsóknir sem gerđar voru á efnasambandinu í Sovétríkjunum sálugu, ţykja mörgum vestrćnum vísindamönnum ekki trúverđugar. Ástćđuna segja ţeir međal annars ófullnćgjandi upplýsingar og óvönduđ vinnubrögđ viđ úrvinnslu gagna. Í ţeim rannsóknum sem gerđar hafa veriđ utan Sovétríkjanna hefur ekki tekist ađ fćra sönnur á nćringar- eđa lćknisfrćđilegt gildi pangamínsýru. Frćđimenn virđast skiptast í tvo hópa varđandi pangamínsýru, annađ hvort hafa ţeir enga trú á gildi hennar hvorki sem vítamíni né til lćkninga, eđa tröllatrú.
Rússneskir lćknar nota pangamínsýru mikiđ til lćkninga. Ţeir telja hana örva ónćmiskerfiđ, bćla langanir í alkóhól, verja lifrina gegn skorpnun, koma ađ efnaskiptum fitu og vera áhrifaríka viđ ađ halda kólesterólmagni í blóđi í skefjum. Kransćđasjúkdómar, hjartakveisa, lungnaţemba, astmi, gikt, taugabólga og gláka eru sjúkdómar sem rússneskir lćknar ráđleggja pangamínsýru viđ. Einnig halda ţeir ţví fram ađ pangamínsýra hafi jákvćđ áhrif á líftíma frumna, verndandi áhrif á líkamann gegn mengun, ađ hún auki úthald, komi ađ haldi hjá áfengissjúklingum, hjartasjúkum og öldruđum. Í Autism Research Review International er áhugaverđ umfjöllun um jákvćđ áhrif pangamínsýru á einhverfa einstaklinga, ţá sérstaklega tal, athygli, einbeitingu, og áráttuhegđun. Ţar kemur međal annars fram ađ einhverfir einstaklingar sem ekki töluđu, tóku ađ tala eftir ađ hafa veriđ gefin pangamínsýra í skamman tíma.
Fćđutegundir sem eru auđugar af pangamínsýru eru ölger, hýđishrísgrjón, heilkorn, graskersfrć, apríkósukjarnar, hnetur og sesamfrć. Annars má segja ađ B-15 sé hćgt ađ finna í fćđu sem inniheldur önnur B-vítamín. Vatn og sólskin eru gagnvirk pangamínsýru.
Einkenni skorts eru lítt ţekkt, en Rússar telja ađ m.a. megi rekja minnkađ súrefnisstreymi til frumna, hjartasjúkdóma, sem og kirtla- og taugakvilla til skorts á pangamínsýru.
Engin dagsskammtur af pangamínsýru er opinberlega ráđlagđur. Hinsvegar er hún oft gefin sem bćtiefni í 50 mg töflum, ein tafla á dag. Ţegar pangamínsýra er gefin til lćkniga, er algengur skammtur 50-150 mg á dag.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.





