B-6 vítamín / pýridoxín
Pýridoxín eđa vítamín B-6 er vatnsleysanlegt. Ţađ er mikilvćgt viđ
efnaskipti fitu og eggjahvítu og fyrir myndun adrenalíns og
serótóníns. Skortur á serótóníni er oft tengdur ţunglyndi og örum
skapbreytingum. Tíđaţrautir geta t.d. orsakast af slíkum skorti,
enda sýna margar rannsóknir fram á gagnsemi B-6 vítamíns gegn
tíđaţrautum.
B-6 er nauđsynlegt fyrir starfsemi lifrar og myndun tauga- og bođefna, ţađ er ţví mikilvćgt fyrir starfsemi heila og vöđva. B-6 hjálpar til viđ ađ halda jafnvćgi á milli natríums og kalíums í líkamanum, en ţessi efni sjá m. a. um ađ halda vökva líkamans í réttu horfi. Ţađ er einnig mikilvćgt til framleiđslu mótefna gegn innrás sýkla. Nćgilegt magn af B-6 í líkamanum getur dregiđ úr hćttu á húđsjúkdómum, getur t.d. gagnast gegn gelgjubólum. Líkaminn ţarfnast B-6 til blóđmyndunar og til ađ nýta B-12 vítamín.
Mikil neysla eggjahvítu eykur ţörf á B-6 vítamíni. Ţađ virđist virka betur međ öđrum B-vítamínum og er stundum notađ međ sinki og magnesíum, sem eru náttúrulegir félagar ţess í margri starfsemi líkamans. Einkenni um skort eru m.a. ofţreyta, truflun á starfsemi miđtaugakerfis og húđar, ónóg blóđmyndun, tannskemmdir og beináta.
Ráđlagđir dagsskammtar eru:- ungbörn ađ hálfs árs aldri: 0,3 mg
- ungbörn hálfs-eins árs: 0,5 mg
- 1-3 ára: 0,8 mg
- 4-6 ára: 0,9 mg
- 7-10 ára: 1,1 mg
- karlar ađ 75 ára aldri: 1,3-1,5 mg
- karlar 76 ára og eldri: 1,2 mg
- konur ađ sextugu: 1,2 mg
- konur 61 árs og eldri: 1,1 mg
- ţungađar konur: 1,4 mg
- konur međ barn á brjósti: 1,5 mg






