Bíótín
Bíótín, sem er einnig ţekkt undir öđrum nöfnum svo sem H-vítamín, kóensím-R og bios er vatnsleysanlegt. Viđ fáum ţađ úr fćđunni, auk ţess sem ţađ myndast í ţörmunum ţegar gerlagróđur meltingafćranna er heilbrigđur. Bíótín hjálpar til viđ ýmis ferli í líkamanum svo sem efnaskipti fitu, amínósýra og kolvetna.
Bíótínauđugar fćđutegundir eru m. a. nýru, lifur, sojabaunir, sveppir, bananar, haframjöl, ávextir, ölger, eggjarauđur, mjólk og hýđishrísgrjón. Bíótín vinnur međ B2, B6, B3 og A-vítamíni og er ţví yfirleitt tekiđ inn í fjölvítamín- og blönduđum B-vítamíntöflum. Súlfalyf, estrógen, áfengi, suđa, og mikil neysla hrárrar eggjahvítu draga úr frásogi bíótíns.
Skortur á bíótíni er ekki algengur, ţví ţađ er algengt fćđu auk ţess ađ myndast í meltingafćrum. Skortseinkenni koma fram í hárlosi, flösu, húđexemi, óreglulegri starfsemi fitukirtla, geđdeyfđ, vöđvaverkjum, ţreytu og lystarleysi. Stöđug neysla ţess er mikilvćg ţar sem ţađ er vatnsleysanlegt og safnast ţar af leiđandi ekki upp í líkamanum. Ţađ hefur jákvćđ áhrif á heilbrigđi hárs og hárvöxt og getur gagnast viđ hárlosi og exemi.
Ráđlagđir dagsskammtar eru:- ungbörn ađ hálfsárs aldri: 10 mcg
- 6-12 mánađa: 15 mcg
- 1-3 ára: 20 mcg
- 4-6 ára: 25 mcg
- 7-10 ára: 30 mcg
- 11-14 ára: 30-100 mcg
- 14 ára og eldri: 30-100 mcg






