C vítamín
C-vítamín eđa askorbínsýra eins og ţađ heitir á frćđimáli, er
vatnsleysanlegt. Menn, apar og naggrísir eru einu skepnurnar sem
ekki geta myndađ sitt eigiđ C-vítamín og verđa ţess vegna ađ
treysta á ađ nćgilegt magn sé af ţví í fćđunni. Ýmislegt bendir til
ađ ţörf mannsins fyrir C-vítamín hafi aukist samhliđa aukinni
iđnţróun og hinum neikvćđa fylgifiski hennar, ţ.e. mengun. Hlutverk
C-vítamíns til viđhalds heilbrigđi líkamans er margţćtt. Ţađ hefur
mikilvćgu hlutverki ađ gegna viđ myndun bandvefs, er stór ţáttur í
vexti og heilbrigđi ćđa, beina, góms og tanna ásamt ţví ađ auka
frásog járns. C-vítamín hjálpar sárum ađ gróa og eykur viđnám
líkamans gegn sýkingum. Líkaminn ţarfnast aukins C-vítamíns ţegar
hann er undir andlegu eđa líkamlegu álagi. C-vítamín er sindurvari
(andoxunarefni) ţ. e. ver frumur líkamans gegn skađlegum áhrifum
stakeinda, en ţađ eru úrfellingarefni sem verđa til viđ efnaskipti
í líkamanum.
Margvíslegar rannsóknir hafa veriđ gerđar á C-vítamíni og áhrifum
ţess á mannslíkamann. Flestum eru kunnar niđurstöđur rannsókna á
jákvćđum áhrifum C-vítamíns á kvef, bćđi fyrirbyggjandi og sem
hjálp viđ ađ ná sér eftir sýkingu, en niđurstöđur annarra rannsókna
međ C-vítamíni hafa trúlega fengiđ minni umfjöllun. Fjöldi
rannsókna benda til ţess ađ inntaka C-vítamíns dragi úr hćttu á
sumum tegundum krabbameins, hjarta- og ćđasjúkdómum, háţrýstingi,
fituúrfellingu ćđaveggja og augndrera. Ţćr benda einnig til ađ
C-vítamín verndi húđina gegn skađlegum áhrifum útfjólublárra geisla
A og B og verji hana ţar međ gegn ótímabćrri öldrun og hrukkum.
Rannsóknir hafa sýnt ađ bćđi reykingar og áfengisneysla auka ţörf á
C-vítamíni stórlega. Ljóst er ađ ráđlagđur dagsskammtur er
umtalsvert lćgri en margir frćđimenn telja ađ hann eigi ađ vera,
sumir ţeirra segja allt ađ 60 - 100 falt lćgri en hin raunverulega
ţörf líkamans sé.
Fćđutegundir sem eru auđugar af C-vítamíni eru fyrst og fremst ferskir ávextir og grćnmeti. Má ţar nefna sítrusávexti, kiwi, ber eins og sólber, jarđarber og rifsber, papriku, kartöflur, hvítkál, tómata, blómkál, grćnt laufmikiđ grćnmeti og brokkóli. Reykingar, áfengi, súrefni, birta, hiti, suđa og vatn eru gagnvirk C-vítamíni.
Ţekktasta skortseinkenni C-vítamíns er skyrbjúgur. Önnur einkenni eru minnkuđ móstađa gegn smiti, ţreyta, mćđi, meltingartruflanir, sárir og bólgnir liđir, hćgfara bati á sárum, vöđvaslen, blóđnasir, tannlos, tannskemmdir, bólginn og aumur gómur, blóđleysi, stökkar hárćđar og ótímabćr öldrunareinkenni svo eitthvađ sé nefnt.
Ráđlagđir dagsskammtar eru:
- ungbörn ađ 6 mánađa aldri: 30 mg
- hálfs árs til eins árs: 35 mg
- 1-3 ára: 40 mg
- 4-10 ára: 45 mg
- karlar frá 10 ára aldri: 60 mg
- konur frá 10 ára aldri: 60 mg
- ţungađar konur: 70 mg
- konur međ barn á brjósti: 90 mg
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






