Fólínsýra
Fólínsýra er vatnsleysanlegt vítamín sem flokkađ er í hóp B-vítamína og er einnig ţekkt undir heitinu fólasín. Fólínsýra er raunverulega hópur efnasambanda og er nafniđ dregiđ af latneska orđinu "folium" sem merkir lauf. Fólínsýra er nauđsynleg fyrir alla frumuskiptingu, til myndunar DNA og RNA jafnframt ţví sem hún gegnir mikilvćgu hlutverki viđ myndun rauđra og hvítra blóđkorna, slímhúđar og annarra fruma sem skipta sér ört. Mikilvćg fyrir heilbrigt bataferli.
Fćđutegundir sem eru auđugar af fólínsýru eru m. a. ölger, grćnmeti, einkum grćnt svo sem spergilkál, spínat og annađ grćnt lauf, fiskur, kjöt, baunir, hnetur, egg og innmatur. Fólínsýra ţolir illa hita og skemmist viđ suđu, einnig er hún viđkvćm fyrir ljósi. Áfengi og ýmis lyf svo sem pillan og algeng verkja- og sýklalyf eru gagnvirk fólínsýru.
Skortur á fólínsýru er útbreiddasti vítamínskortur á byggđu bóli, einkum međal fátćkra ţjóđa. Skortur dregur úr eđlilegum vexti og getur valdiđ blóđskorti og öđrum truflunum á starfsemi blóđs, einnig truflunum á starfsemi meltingarfćra, jafnframt höfuđverk og sljóleika. Streita getur veriđ međvirkandi orsakavaldur skorts. Ţungađar konur ćttu ávallt ađ ganga úr skugga um ađ ţćr fái nćgilegt magn af fólínsýru, ţ.e. daglega 400 mcg, ţví skortur á fólínsýru getur valdiđ galla í taugakerfi fósturs.
Nýleg rannsókn viđ Georgíuháskóla í Bandaríkjunum (U.S. Centers for Disease Control and Prevention) bendir til ađ samband geti veriđ á milli minnkandi heyrnar og skorts á fólínsýru og vítamíni B-12. Konur (á milli 60 og 71 árs aldurs) međ heyrnartap skorti fólínsýru og B-12. Ţeir sem stóđu ađ rannsókninni prófuđu 55 konur, m.a. var heyrnin prófuđ og magn vítamína í blóđi. Athyglisvert var ađ međal kvenna međ heyrnartap höfđu 38% of lítiđ af B-12 of 25% of lítiđ af fólínsýru. Vísindamenn telja ađ skortur ţessara bćtiefna geti skađađ starfsemi tauga og blóđstreymi í eyrum og umhverfis ţau.1
1. Denise K. Houston, et al. "Age-Related Hearing Loss, Vitamin B-12 and Folate in Elderly Women." Amercan Journl of Clinical Nutrition, Vol 69, March 1999, pp. 564-571.
Ráđlagđir dagsskammtar eru mćldir í míkrógrömmum (mcg):
- ungbörn ađ hálfs árs aldri: 35 mcg
- 6-12 mánađa: 50 mcg
- 1-3 ára: 75 mcg
- 4-6 ára: 100 mcg
- 7-10 ára: 150 mcg
- karlar 11-14 ára: 240 mcg
- karlar 15 ára og eldri: 300 mcg
- konur 11-14 ára: 240 mcg
- konur 15 ára og eldri: 300 mcg
- konur á međgöngu: 400 mcg
- konur međ barn á brjósti: 400 mcg
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






