Inósítól
Ţrátt fyrir ađ menn hafi uppgötvađ inósítól áriđ 1850 fékk ţađ ekki viđurkenningu sem vítamín fyrr en áriđ 1956. Ţađ telst til B-vítamína og er vatnsleysanlegt. Ekki finnst jafn mikiđ af neinu fjörefni í líkamanum og inósítóli fyrir utan níasín. Hvernig ţađ vinnur í líkamanum hefur ekki veriđ rannsakađ nákvćmlega. Vitađ er ađ ţađ er í himnu fruma og er mikilvćgur ţáttur í viđbragđi ţeirra viđ áreiti, taugabođum og stjórnun starfsemi ensíma. Einnig vinnur inósítól međ kólíni viđ niđurbrot og vinnslu fitu og kólesteróls. Inósítól er ađ finna víđa í fćđunni auk ţess sem líkaminn virđist geta framleitt ţađ í meltingarfćrunum.
Fćđutegundir sem eru auđugar af inósítóli eru sítrus ávextir, grćnmeti, hnetur, baunir, hýđishrísgrjón, ölger, mólassi og hveitikím. Einnig er ţađ ađ finna í innmat svo sem hjörtum, lifur og nýrum sérstaklega hjá nautgripum. Einkenni skorts eru lítt ţekkt en taliđ er ađ skortur á inósítóli geti veriđ međvirkandi valdur ađ exemi og hárlosi. Inósítól hefur góđ áhrif á hár og húđ. Sýklalyf, áfengi, getnađarvarnarlyf, kaffi og allir kóladrykkir eru gagnvirk inósítóli.
Gerđar hafa veriđ fjölmargar rannsóknir sem benda til ađ inósítól hjálpi til viđ ađ brjóta niđur uppsafnađa fitu og gćti ţess vegna hjálpađ einstaklingum sem ţjást vegna of hárrar blóđfitu. Einnig eru tilgátur um ađ ţađ verki gegn einkennum tengdum geđheilsu manna svo sem kvíđa, svefnleysi og geđklofa. Í blađinu American Journal of Psychiatry er sagt frá rannsókn sem gerđ var í Ísrael međ inósítóli. Ţar kom í ljós ađ inósítól getur haft góđ áhrif á ţunglyndi, kvíđa og ţráhyggjuáráttu.
Dagsţörf inósítóls hefur ekki veriđ fundin. Ţađ er hinsvegar ljóst ađ líkamin ţarfnast ţess og sumir fá ekki nógu mikiđ af ţví. Ekki er ráđlegt ađ taka inósítól eitt sér ţar sem ţađ er samvirkt međ öđrum B-vítamínum. Ţađ er ţví ađ finna í mörgum B-hóps töflum oft í svipuđu magni og kólín.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.





