Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Hreinsun

Margar leiðir eru færar til að hreinsa líkamann og eru þær eins mismunandi og þær eru margar. Margir velja þann kost að taka út þungmelta fæðu og þá er gott að taka inn meira af söfum sem létta á meltingunni og svo eru til mismunandi föstur sem fela í sér að halda sig frá allri fastri fæðu í mismunandi langan tíma.

Ţegar verið er að hreinsa líkamann er mikilvægt að tryggja líkamanum nauðsynleg næringarefni og er mjög ákjósalegt að nota jurtir og safa og annað sem styrkir líffærin sem sjá um hreinsunina.

Ţegar við tökum okkur til og hreinsum líkamann er mikilvægt að huga að góðri hreyfingu og ræktun hugans. Hreyfingin er nauðsynleg þar sem hún flýtir fyrir og hjálpar til við hreinsunina. Þegar blóðrásin eflist þá hreinsast eiturefnin hraðar og skilvirkar út.

Fyrir þá sem vilja fara öruggu leiðina mælum við með Biotta heilsuvikunni.

Í Biotta heilsuvikunni færðu holla lifnaðarhætti og líkamsfegurð í einum pakka: þú hreinsar líkama þinn og uppskerð hraustlegra og heilsusamlegra útlit. Ólíkt t.d. kraftmiklum föstum eða öðrum megrunaröfgum fylgir Biotta heilsuvikunni alls ekkert svelti. Þökk sé hágæða grænmetissöfum og lífrænt ræktuðum ávöxtum, þá fær líkami þinn öll nauðsynleg vítamín og næringarefni á meðan á heilsuvikunni stendur. Heilsuvikan var þróuð árið 1995 af vísindamönnum Biotta og sérfræðingar mæla sífellt með henni.

Náðu í leiðbeiningarbækling um Biotta heilsuviku



Tengdar vörur

Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Doves

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta