Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Unglingabólur

Unglingabólur eru afar algengur húđkvilli sem flestir unglingar geta fengiđ á gelgjuskeiđinu en leggst ţó meir á drengi og sumir glíma viđ ţennan kvilla fram eftir ćvinni. Ţessar bólur verđa til vegna bólgu í fitukirtlum sem umlykja hársekki líkamsháranna. Ţessir kirtlar framleiđa fitu sem er eins konar blanda af olíu og vaxi til ađ "smyrja" húđina og koma í veg fyrir rakatap. Mest er af ţessum kirtlum í andliti en einnig eru ţeir á baki, bringu og öxlum.

Unglingabólur tengjast aukinni framleiđslu líkamans á karlhórmónum (testósterón) hjá báđum kynjum, ađ sjálfsögđu mest ţó hjá drengjum. Ţessi hormón stuđla ađ aukinni framleiđslu keratíns, en hár, neglur og ysta lag húđar eru ađ mestu mynduđ úr keratíni. Offramleiđsla keratíns getur stíflađ fitukirtlana auk ţess sem kirtlarnir stćkka af völdum testósteróns og framleiđa aukna fitu sem kemst illa út um op kirtlanna, ţannig ađ ţeir bólgna. Bólurnar myndast síđan fyrir tilstilli húđbakteríu sem nćrist á fitu og gefur frá sér ensím sem valda bólgu. Sé bólgan mikil getur hún valdiđ skemmdum á húđvefjum sem í verstu tilfellum skilja eftir sig varanleg ör. Í slíkum tilfellum er betra ađ bregđast skjótt viđ vandanum.

Rannsóknir benda til ađ ţeir sem illa eru haldnir af unglingabólum hafa meira af ensíminu 5-alpha-reductase, en ţađ breytir testósteróni í sterkara eđa virkara form, ţekkt sem díhýdrótestósterón (DHT). Ţetta gćti veriđ vísbending um ađ ţađ sé ekki magn testósteróns sem sé ábyrgt fyrir bólunum, heldur ađ magn ţessa ensíms geri útslagiđ um hve illa bólurnar leika unglinginn.

Hvađ er til ráđa

Fyrst er ađ huga ađ fćđunni. Almennt gildir reglan ađ borđa holla og nćringarríka fćđu. Forđast ćtti hvítan sykur og allt sem inniheldur mikinn sykur, djúpsteiktan mat og annan fituríkan mat, ekki síst transfitusýrur sem eru í kjöti og kjötafurđum, mjólkurafurđum og hertri jurtafitu, svo nokkuđ sé nefnt. Bent hefur veriđ á ađ mjólk sé auđug af hormónum auk ţess sem í henni eru transfitusýrur og gćti hún ţví veriđ óheppileg nćring fyrir ţá sem unglingabólurnar hrjá. Vanlíđan og streita gera illt verra og sérstaklega er óćskilegt ađ kreista bólurnar eđa fitka mikiđ í ţeim.

Sink er afar mikilvćgt nćringarefni fyrir heilbrigđi húđarinnar. Ţess er m.a. ţörf fyrir efnaskiptaferli testósteróns. Sé lítiđ af sinki fyrir hendi breytist meira af testósteróni í díhýdrotestósterón (DHT), sem, eins og komiđ hefur fram, örvar framleiđslu fitu og keratíns. Sink er einnig nauđsynlegt fyrir ónćmiskerfiđ, endurnýjun vefja, til ađ sár grói og til ađ hemja bólgur. Til eru allnokkrar tvíblindar rannsóknir ţar sem sink er prófađ gegn unglingabólum. Sumar sýna mjög góđan árangur, ađrar ţokkalegan og nokkrar lítinn sem engan.1,2,3,4 Sink er til í margs konar formi. Rannsókn ţar sem venjulegt sink súlfat var notađ sýndi t.d. engan árangur.2 Nýrri rannsókn ţar sem notađ var sink glúkonat (30 mg sink á dag í 2 mánuđi) sýndi mjög góđan árangur.4 Eitt besta og virkasta form af sinki er sink pikólínat, líkaminn nýtir ţađ betur en sink í öđru formi og ćtti ţađ ţví ađ koma ađ enn betri notum en annađ sink.

A-vítamín, E-vítamín og selen

A-vítamín hefur í fjölda rannsókna reynst draga úr framleiđslu fitukirtlanna og úr keratínmyndun. Ţessi árangur hefur ţví miđur ađeins náđst međ skömmtum sem eru svo stórir ađ ţeir geta valdiđ eitrunum. Lćknar telja ţó ađ ekki sé ţörf á ţessum stóru skömmtum, heldur megi nota skammta alveg niđur í 10.000 ae á dag, séu E-vítamín og selen notuđ međ. Skorti E-vítamín er A-vítamín lágt í blóđi, jafnvel ţó tekin séu inn A-vítamín bćtiefni. E-vítamín vinnur jafnframt međ seleni, en ţađ kemur ađ starfsemi ensímsins glútatíón peroxídase. Ţetta ensím er mikilvćgt til ađ fyrirbyggja bólgumyndun í unglingabólum. Rannsóknir sýna ađ ţetta ensím er iđulega í ónógu magni hjá ţeim sem illa eru haldnir af unglingabólum. Eftir inntöku E-vítamíns og selens eykst magn ţessa ensíms međ ţeim árangri ađ stórlega dregur úr bólunum.5

Útvortis

Echinaforce urtaveig er unnin úr ferskum sólhatti, en sú jurt inniheldur efni sem vinnur á örverum eins og bakteríum. Best er ađ setja svolítiđ í rakan snyrtisvamp eđa bómull og strjúka yfir bólurnar. Ţar sem Echinaforce er áfengisupplausn úr jurtinni, getur ţađ ţurrkađ húđina lítillega.

Molkosan er ţykkni sem unniđ er úr mysu. Ţađ er auđugt af "vinveittum" mjólkursýrugerlum (í ćtt viđ Acidophilus gerla), sem hafa sótthreinsandi og grćđandi áhrif. Gott er ađ dreypa Molkosan í rakan
snyrtisvamp eđa bómull og strjúka yfir allt andlitiđ og önnur bólótt svćđi, áđur en lagst er til náđa. Ţó ađ mađur finni ađeins fyrir ţví á húđinni fyrst eftir ađ ţví er strokiđ yfir hana, á ekki ađ skola ţađ af.

Tea trea olía inniheldur afar virk bakteríudrepandi efni og er af mörgum talin einhver besta snyrtivara sem sóttvörn á húđina.  Rannsókn viđ Royal Prince sjúkrahúsiđ í Nýju Suđur Wales í Ástralíu sýndi ađ ţessi olía gaf sama árangur og lyf sem algengt er ađ nota (benzóíl peroxíđ), en međ langtum minni aukaverkunum.6 Tea trea olía er sterk og ţví betra ađ ţynna hana út í mildri húđoíu áđur en hún er borin á bólurnar.

Snyrtivörur

Vandađar jurtasnyrtivörur fást m.a. frá Annemarie Börlind og í ţeim er m.a. sérstök lína fyrir óhreina unglingahúđ. Hún inniheldur jurtaupplausnir og jurtaolíur úr lífrćnni rćktun sem vinna á bakteríum, nćra húđina og eru ofnćmisprófađar á sjálfbođaliđum. Ţessar snyrtivörur hafa reynst unglingum af báđum kynjum afar vel í baráttunni viđ bólurnar.

Heimildir:

1. Michaelsson G, Juhlin L, Ljunghall K. A double-blind study of the effect of zinc and oxytetracycline in acne vulgaris. Br J Dermatol.1977;97:561-566.

2. V. Weimar, S.Puhl, W. Smith and J. Broeke, "Zinc Sulphate in Acne Vulgaris," Arch Dermatol 114 (1978):1776-8.

3. G. Michaelsson, L. Juhlin and A. Vahlquist, "Effects of Oral Zinc and Vitamin A on Acne," Arch Dermatol 113(1977):31-6.

4. Dreno B, Amblard P, Agache P, et al. Low doses of zinc gluconate for inflammatory acne. Acta Derm Venereol. 1989;69:541-543.

5. G. Michaelsson and L. Edqvist, "Erythrocyte Glutathione Peroxidase Activity in Acne Vulgaris and the Effect of Selenium and Vitamin E Treatment," Acta Derm Venerol 64(1984):9-14.

6. Bassett IB, Pannowitz DL, Barnetson RS. A comparative study of tea-tree oil versus benzoylperoxide in the treatment of acne. Med J Aust. 1990;153:455-458.

Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.



Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Solaray

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta