Brjóstsviđi
Orsakir og einkenni
Algengast er ađ brjóstsviđi orsakist af vélindabakflćđi, en magabólgur geta einnig valdiđ ţessum óţćgindum. Algengasta orsök vélindabakflćđis er slakur magaopsvöđvi (milli vélinda og efra magaops), en einnig getur t.d. ţindarslit valdiđ brjóstsviđa. Síđan geta ađrir ţćttir ýtt undir brjóstsviđa, svo sem offita, harđlífi (töf á magatćmingu), ţungun, en ţessir ţćttir valda ţrýstingi á magann, einnig reykingar (ţćr slaka á efra magaopi) og áreynsla á kviđvöđva. Margir finna sérstaklega fyrir brjósviđa ţegar ţeir leggja sig eđa eru ađ bogra. Feitur matur er talinn geta stuđlađ ađ brjóstsviđa og ţađ gera kaffi og áfengi líka, sem og matarmiklar máltíđir.
Ráđ
Séu fyrrnefndir brjóstsviđavaldar fyrir hendi, eins og offita, reykingar, áfengisneysla, mikil kaffidrykkja eđa annađ sem ýtir undir brjóstsviđa, er skynsamlegt ađ koma lagi á ţá. Venjulega eru notuđ magasýrulyf viđ brjóstsviđa til ađ slá á einkennin. Vert er ţó ađ hafa í huga ađ langtímanoktun ţeirra getur dregiđ úr frásogi ákveđinna vítamína og steinefna. Auk ţess hafa vísindamenn bent á ađ langtímanotkun magasýrulyfja sem innihalda alúmín geta stuđlađ ađ ţróun alsheimer sjúkdóms, einnig stuđlađ ađ beinţynningu. Rétt er ađ forđast matarmiklar máltíđir, einkum undir svefninn. Ţungar máltíđir, samfara áfengisneyslu, reykingum og kaffidrykkju eru ávísun á brjóstsviđa, ekki síst undir svefninn. Gagnast getur ađ sofa međ hátt undir höfđi.
Bćtiefni sem reynst hafa vel viđ brjóstsviđa eru eins og fyrr er greint, aloe vera gel, DGL lakkrísrót tuggutöflur og regnálmur. Aloe vera gel er tekiđ inn, 1 msk í glasi af vatni eftir máltíđir og áđur en gengiđ er til náđa. Gamalt húsráđ sem gefist hefur sumum vel er ađ tyggja nokkrar möndlur.
Silicea Gel gagnast vel viđ óţćgindum í maga og ţörmum. Ţađ getur komiđ ađ notum m.a. viđ bólgum í magaslímhúđ, niđurgangi og brjóstsviđa, ţví kísilsýran bindur úrgangsefni og hrađar ţeim úr líkamanum. Gott er ađ blanda 1 msk. af gelinu í bolla af t.d. kamillutei eđa tei af einhverri ofangreindra jurta.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






