Astmi
Það er mjög algeng reynsla þeirra sem reyna að fá bót á astma
með matarræði að mikilvægast sé að sleppa allri mjólk og
mjólkurvörum. Það eitt virðist oft gera kraftaverk gegn astma.
Þetta er ekki eins erfitt og það lítur úr í fyrstu, því mikið er
til af vörum úr soja sem nota má í stað mjólkur, svo sem soja
jógúrt, sojamjólk, sojadessertar, sojaostur o.s.fr. Einnig er til
úrval af drykkjum sem framleiddir úr hrísgrjónum og höfrum til að
nota í stað mjólkur.
Annað sem vert er að gæta að er MSG eða þriðja kryddið. MSG
(monosódíumglútamat) er einnig nefnt þriðja kryddið. Það er í
flestum kraftteningum (súputeningum) og flestar tegundir kryddsalts
innihalda það einnig. Það er notað í tilbúnar súpur, sósur, snakk
alls konar og tilbúin matvæli. Á umbúðum vara er það sjaldan merkt
MSG, heldur E-621 eða oft aðeins merkt sem bragðauki (flavour
enhancer). Viðkvæmt fólk getur fundið fyrir óþægindum eftir neyslu
matar sem inniheldur MSG, svo sem sljóleika, ógleði, svima,
óeðlilegs þorsta, dofa í hálsi og bringu og höfuðverks. Þessi
óþægindi eru á ensku nefnd "Chinese Restaurant Syndrome",
sem helgast af því hversu kínversk veitingahús eru óspör á MSG við
matargerð.
Nú orðið fæst í heilsubúðum gott úrval af súpum, sósum,
kraftteningum og öðrum vörum sem í venjulegum matvörubúðum
innihalda MSG.
Meginorsökum astma má skipta í tvennt. Fyrri flokkurinn er ofnæmi
og aðrir þættir sem hafa áhrif á ónæmiskerfið. Helstu
orsakavaldarnir eru frjókorn, dýrahár, dýraflasa, ryk (rykmaurar)
og sveppagró. Þegar viðkomandi hefur ofnæmi fyrir einu eða fleiru
af ofantöldu eykst magnið af mótefninu IgE sem setur
ofnæmiseinkenni af stað, s.s. kláða í augum og öndunarvegi, nef- og
tárarennsli.
Hinn meginorsakaflokkinn má kalla ertingu. Undir hann flokkast
sýkingar í öndunarvegi (s.s. bronkítis), líkamleg áreynsla,
innöndun á reyk eða gufum, t.d. sígarettureyk eða efnagufum, ryk
(rykmaurar) og kalt, þurrt og/eða rakt loft. Einnig hefur andlegt
ástand áhrif, of mikil streita eða álag getur ýtt undir erfiðleika
í öndundarvegi. Sveppasýking í meltingarvegi (Candida albicans)
virðist geta valdið astma, en ofnæmisvaldurinn í þeim tilvikum er
próteasi sem er efni sem Candida sveppurinn framleiðir.
Í báðum gerðum astma eru það efni í ónæmisfrumum (mastfrumum),
m.a. histamín, sem valda bólgumyndun. Þessar ónæmisfrumur eru
sérþróaðar hvítar blóðfrumur sem finnast í ýmsum vefum líkamans,
þ.á.m. í veggjum öndunarvegsins. Í þessum frumum er einnig að finna
hóp af efnum sem saman kallast leukotrín en sum þeirra eru allt að
þúsund sinnum sterkari ofnæmismiðlarar en histamín. Astmasjúklingar
virðast hafa tilhneigingu til að mynda mjög mikið magn af
leukotrínum. Bólgueyðandi lyf, s.s. íbúprófen og aspirín og viss
litarefni í matvörum eða lyfjum eru talin auka myndun á
leukótrínum. Tartrazine (E-102 eða yellow dye #5) er litarefni sem
bætt er út mjög mikið af unnum matvörum og hefur einnig fundist í
vítamínum og astmalyfjum. Sýnt hefur verið fram á að það valdi
astma, sérstaklega hjá börnum. Sem fyrr greinir er MSG undir sömu
sök selt.
Bætiefni:
Fitusýrur: Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem borða fisk
oftar en einu sinni í viku eru í þrisvar sinnum minni hættu á að fá
astma en þau sem ekki borða reglulega fisk. Nokkrar aðrar
rannsóknir sýna að aukin inntaka af ómega-3 fitusýrum bæta
öndunarstarfsemi og viðbrögð öndunarvegarins við ofnæmisvöldunum.
Hins vegar gæti tekið allt að eitt ár að finna fyrir verulegum bata
þar sem það virðist taka líkamann allnokkurn tíma að nýta þessar
fitusýrur þannig að þær gagnist að þessu leiti.
C-vítamín er öflugt andoxunarefni og löngu þekkt sem sterk vörn
fyrir ónæmiskerfið. Rannsóknir hafa nú einnig sýnt fram á að
astmasjúklingar hafa oft áberandi lítið af C-vítamíni í blóði. Sjö
af 11 rannsóknum sem gerðar hafa verið síðan 1973 með C-vítamín
inntöku hjá astmasjúklingum sýna verulegan bata við
öndunarmælingar og á astmaeinkennum. Voru ýmist gefin 1000 eða
2000 mg. Svo virðist einnig sem stórir skammtar af C-vítamíni
í lengri tíma geti lækkað histamínmagnið í blóðinu og er því
sterklega mælt með því fyrir ofnæmissjúklinga.
Flavóníðar: Ýmsir flavóníðar, þó sérstaklega kersitín, virðast
hindra losun histamíns úr ofnæmisfrumunum
og framleiðslu á leukótrínum. Kersitín er að finna í
þrúgukjarnaþykkni (grape seed extract), furubarkarþykkni (pine bark
extract), grænu tei, lauk, eplahýði og Ginkgo Biloba og sterkast
einfaldlega í kersitín töflum.
E-vítamín getur hindrað myndun á leukótrínum.
Selen: Til að geta brotið niður ensímið glútatíon peroxídasa þarf líkaminn að nota selen. Þetta ensím sér um að hindra framleiðslu og brjóta niður leukótrína sem eru eins og fyrr segir hópur efna sem valda ofnæmisviðbrögðum í líkamanum.
Breski jurtalæknirinn Susan Clark, sem meðal annars svarar spurningum fólks í breska stórblaðinu The Times, mælti fyrir nokkru síðan með berki af Lapachotrénu fyrir astmasjúklinga. Viðbröðgin létu ekki á sér standa. Margir lesenda The Times létu frá sér heyra og sögðu að eftir að þeir fóru að taka inn Lapacho hefði heilsa þeirra batnað verulega og dregið hefði úr astmaköstum. Algengast er að Lapacho sé drukkið sem te. Hér er um athyglisverðan kost að ræða fyrir astmasjúklinga og aðra þá sem þjást af öndunarfærasjúkdómum.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar
lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað
tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni.
Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum
ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu
bætiefna.






