Svefnleysi
Hćgt er ađ flokka svefnleysi í tvo mismunandi ţćtti. Annars vegar er um ađ rćđa ţađ ástand ađ fólk sé sífellt ađ vakna upp eftir ađ ţađ hefur sofnađ og eigi erfitt međ ađ sofna aftur. Hins vegar er ţađ ástand ađ fólk eigi erfitt međ ađ sofna á kvöldin. Svefnleysi getur veriđ tímabundiđ, komiđ fyrir endrum og eins eđa veriđ viđvarandi vandamál.4
Ástćđur svefnleysis geta veriđ ýmsar. Ein ástćđa gćti t.d. veriđ sú ađ viđkomandi hafi fengiđ of mikiđ af koffeíni yfir daginn og skal ţá hafa í huga ađ áhrifa koffeíns getur gćtt í allt ađ 20 tíma.4 Annađ sem erfiđara er ađ hafa stjórn á eru sálfrćđilegir ţćttir. Ýmsir ţćttir geta valdiđ streitu, s.s. áhyggjur af vinnu, fjölskyldu eđa fjármálum. Vitaskuld geta veriđ margar ađrar ástćđur fyrir svefnleysi, t.d. nýtt umhverfi, sársauki eđa jafnvel áhyggjur af svefnleysinu sjálfu. Hér á eftir fara nokkur ráđ sem fólk getur prófađ en hafa skal í huga ađ ţessi ráđ koma ekki í stađinn fyrir ráđleggingar lćkna.
Bćta líferni og matarvenjur:
- Sleppa ţví ađ fá sér mat og drykk sem geta haft áhrif á svefn. T.d. sykur, kaffi, kakó, kók og te auk áfengis.3
- Lćra ađ slappa af, stunda t.d. yoga.3
- Hreyfa sig nóg. Líkamlega áreynsla svo sem stífur göngutúr eđa röskur sundsprettur eykur líkamlega ţreytu jafnframt ţví ađ slá á streitu og andlega spennu.3
Bćtiefni og jurtir sem geta bćtt ástandiđ:
- Avena sativa (grćnir hafrar) eru ótrúlega áhrifarík jurt gegn svefnleysi og taugaspennu.4
- Garđabrúđa hefur róandi og slakandi verkun, gott fyrir ţá sem eiga erfitt međ ađ slappa af.2
- Humall er er einstaklega virk jurt gegn svefntruflunum og svefnleysi. Einnig er humall sérstaklega ráđlagđur konum sem eiga erfitt međ svefn um og yfir breytingaraldurinn.1
- Hjartafró (melissa) er bragđgóđ jurt (dauft sítrónubragđ) sem hefur milt róandi áhrif og er mjög vinsćll kvölddrykkur í ţeim löndum sem jurtin á rćtur ađ rekja.
Heimildir:
- Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir. Íslenskar lćkningajurtir.Örn og Örlygur, 1992
- Kolbrún Björnsdóttir. Handbók um lćkningajurtir og gagnsemi ţeirra. Morgunbl.
- Murray, M. og Pizzorno, Joseph. The Encyclopedia of Natural Medicine. Prima Publishing 1998.
- http://www.vitaminworld.com/
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






