Sjóveiki
Fátt er óyndislegra í siglingum en sjóveiki og sama viđ flug- og
bílveiki. Til eru sjóveikitöflur sem hafa samt ţćr leiđu
aukaverkanir ađ virka einnig sljóvgandi. Úr heimi jurtanna má hins
vegar finna einstaklega virka hjálp viđ ţessum hvimleiđu ţrautum.
Svo skemmtilega vill til ađ ţessi jurt er algeng kryddjurt sem áđur
fyrr var helst notuđ ţurkkuđ í bakstur en hefur rutt sér mjög til
rúms í matargerđ hérlendis á síđari árum, en ţessi jurt er
engifer.
Í rannsókn sem fór fram á stóru ítölsku skemmtiferđaskipi voru
borin saman engifer í hylkjum og dimenhydrinat, virka efniđ í
mörgum ferđaveikipillum. Til rannsóknar voru 60 farţegar á skipinu
yfir tveggja daga tímabil ţegar vont var í sjóinn. Í ljós kom ađ
bćđi efnin voru jafngóđ til ţess ađ losna viđ einkenni sjóveikinnar
en munur var á aukaverkunum. Ađeins 13% ţeirra sem tóku engifer
fengu aukaverkanir (t.d. höfuđverk og sljóleika) á móti 40% af ţeim
sem fengu venjulegar sjóveikipillur. Sama niđurstađa hefur hefur
fengist úr rannsóknum annarra ađila á notkun engifers gegn
ferđaveiki og hefur engifer jafnvel reynst áhrifaríkari gegn
ferđaveiki en hefđbundnar sjóveikipillur í sumum rannsóknum.
Heimildir:
Lancet, Mar. 20, I:655-657, Mowrey, D. and Clayson, D:E: (1982) Motion sickness, Ginger and psychophysics.
Upplýsingar ţessar eru samansafn fróđleiks um náttúrulegar lćkningar. Ţeim er ekki ćtlađ ađ koma í stađ tilmćla eđa ráđgjafar fagfólks í heilbrigđisţjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu ţeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ćttu ađ ráđfćra sig viđ lćkni áđur en ţeir hefja neyslu bćtiefna.






