Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Aukaefni í snyrtivörum

Tilbúin efni í snyrtivörum sem betra er að forðast ?

Ef þú villt nátturulegar snyrtivörur, þá verður þú að vera tilbúin að leita þær uppi.  Læra að lesa á umbúðirnar og neita að sætta þig við hálf nátturulegar hár og húð vörur. Hér að neðan er listi sem Aubrey organics, Guðrún Bergmann og Heilsa ehf hafa tekið saman um þau efni sem fólk ætti að forðast í snyrti og hárvörum.  Þessi efni ættu að okkar mati ekki að vera í snyrti- og hárvörum sem kallast náttúrulegar.

1. Methyl, Probyl, Butyl og Ethyl Paraben

Notað sem vörn gegn örveruvexti(rotvörn) í snyrtivörum og til að auka líftíma þeirra.  Hefur valdið margskonar ofnæmisviðbrögðum og útbrotum. Rannsóknir hafa sýnt að þessi efni innihalda kvenhormónið estrógen í vægu magni, og geta frásogast í líkamann í gegnum húðina.  Notuð mikið þrátt fyrir að vitað sé að þau geti verið eitruð. Ţessi efni geta truflað innkirtlastarfsemina, aukið líkur á krabbameini og ófrjósemi.  Finnst í húðvörum.

2. Diethanolamine (DEA), Triethanolamine ( TEA)

Oft notað í snyrtivörur sem bindiefni til að innihaldið freyði betur. Þau geta valdið ofnæmisviðbrögðum, pirring í augum, þurrki í hári og húð. DEA og TEA eru samsettar ammoníakefnablöndur og geta myndað krabbameinsvaldandi sameindir þegar þær komast í snertingu við nítrat.  Þessi efni valda eitrun ef þau frásogast til líkamans í lengri tíma.

3. Diazolidinyl Urea, Imidazolidinyl Urea

Ţetta eru mikið notuð rotvarnarefni.  Ameríska Húðlæknaakademían (The American Academy of Dermatology) hefur sagt að þessi efni séu talin aðal orsök snertiexems. Tvö þekkt nöfn sem innihalda þessi efni eru Germall II og Germall 115.  Hvorugt þessara Germall efna eru góð rotvarnarefni eða  sveppaeyðar, þau þurfa að vera sameinuð öðrum rotvarnarefnum til að virka. Bæði þessi efni losa formalín, sem getur verið eitrað.

4. Sodium Lauryl / Laureth sulfate

Ódýrt, hart þvottaefni notað í hársápur og sápulegi vegna hreinsandi eiginleika og vegna þess hve vel þau freyða.  Oftast unnið úr bensíni. Oft falið í snyrtivörum sem eru sagðar náttúrlegar, með orðasambandinu „kemur úr kókoshnetu". Getur valdið pirringi í augum, hrúðri í hársverði sem líkist flösu, útbrotum á húð og öðrum ofnæmisviðbrögðum.

5. Petrolatum

Einnig þekkt sem petroleum jelly (vaselín), þessi steinefnaríka olía er notuð til að fá mjúka áferð á snyrtivörurnar.  Hefur ekkert næringargildi fyrir húðina og getur haft neikvæð áhrif á eiginleika húðarinnar til að viðhalda eðlilegum raka sínum.  Falskur raki vaselínsins liggur á húðinni sem veldur því að húðin hættir að framleiða sinn eigin náttúrulega raka og verður þurr og sprungin.  Framkallar þannig í raun þau einkenni sem það á að bæta.  Framleiðendur nota þetta vegna þess hversu ódýrt hráefnið er.

6. Propylene Glycol / PEG /Polyethylene glycol / polypropylene glycol

Ţetta er grænmetis glýseról blandað grjóna alkahóli, sem hvort tveggja er náttúrulegt, það er gott.  Venjulega er það blandað tilbúinni jarðolíu og notað sem raki í snyrtivörum.  Þekkt fyrir að valda ofnæmisviðbrögðum, útbrotum og exemi. Talið geta skaðað frjósemi.

7. PVP/VA Copolymer

Efni unnið úr petrolíum notað í hársprey, hármótunarvörur og aðrar snyrtivörur.  Talið hættulegt ef andað að sér þó að í litlu magni sé. Það getur skemmt lungun í fólki sérstaklega fólki sem er viðkvæmt fyrir.

8. Stearalkonium Chloride

Að hluta amoníak efnasamband notað í hárnæringar og krem.  Þróað af verksmiðjuiðnaðinum sem mýkingarefni fyrir textílefni. Þetta er ódýrari og einfaldari blanda í hárnæringu og húðvörur og er því alltof oft valkostur framleiðenda.  Æskilegri innihaldsefni í hár- og snyrtivörum eru prótein og jurtir, þær eru mikilvægar hárinu til viðhalds náttúrulegum glansa og mýkt.  Þetta efni veldur ofnæmisviðbrögðum.  Eitrað.

9. Synthetic Colors

Notað til að gera snyrtivörur „fallegri" á litinn.  Tilbúin litarefni, ásamt tilbúnum háralitum, ætti að forðast algjörlega.  Það sem er merkt sem FD&C eða D&C og á eftir fylgir litur og númer.  Dæmi: FD&C Red No. 6 / D&C Green No. 6. Margir tilbúnir litir hafa krabbameinsvaldandi áhrif.  Ef snyrtivara inniheldur tilbúin litarefni, þá á ekki að nota þau.

10. Synthetic Fragrances

Tilbúin ilmefni sem notuð eru í snyrtivörum, geta innihaldið allt að 200 efni.  Það er engin leið að vita hvaða hráefni er um að ræða, því að á miðanum stendur aðeins „fragrances".  Hluti af óþægindunum vegna þessara efna er höfuðverkur, svimi, útbrot, litabreytingar á húð, hósti, ógleði, húðpirringur- og miklu fleira.  Ekki kaupa snyrtivörur sem segja „fragrances" á innihaldslýsingum.  Þau fyrirtæki sem nota ekta ilmkjarnaolíur setja það alltaf í innihaldslýsingar, vegna þess hversu dýrt hráefni hreinar ilmkjarnaolíur eru.

11. Benzene/ Benzoic Acid/ Benzoate

Ţetta eru mikið notað sem rotvarnarefni.  Innihalda efni sem geta valdið krabbameini, innkirtlaójafnvægi og gæti valdið fósturskaða.  Finnst í sturtusápum, sjampóum og freyðibaði.

12. PEG og -eth/ Poyethylene/polyethylene glycol/oxynol

Mjög eitruð aðskotaefni sem hækka sýrustig líkamans.  Geta innihaldið ¼ -dioxane sem er talið geta valdið krabbameini, vera hormónaraskandi og truflað innkirtlastarfsemi.

13. Methylchloroisothiazolinone/ Methylisothiazoline

Ţessi efni tengjast ofnæmi og vandamálum í taugakerfi.

14. Triclosan /Triclocarban

Ţessi efni geta ögrað starfsemi skjaldkirtils.

15. DMDM hydantoin/ imidanzolidinyl urea

Eitruð aðskotaefni sem hækka sýrustig líkamans, finnst í svitaeyði, sjampó, handáburði og sumum maskörum.

16. Formaldehyde

Talið vera mjög skaðlegt, er krabbameinsvaldandi og getur valdið taugaskaða, finnst í naglalökkum og fleiri húðvörum.

Linkur á Natural News  síðu http://www.naturalnews.com/024296_shampoo_health_organics.html

http://www.purezing.com/living/toxins/living_toxins_dangerousingredients.html

http://www.medicalnewstoday.com/articles/17382.php

http://bestinbeauty.com/top-10-toxins.aspx



Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíđa:

Frćđsla Snyrtivörur Aukaefni í stnyrtivörum

Toppmynd

Nánar um Yogi

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta