Sćkja um umhverfisstyrk Ecover
Heilsa mun styrkja eitt verkefni á ári úr umhverfissjóði Ecover og Heilsu.
Sjóðurinn er fjármagnaður þannig að ákveðin fjárhæð kr. 60 af hverjum pakka af Ecover hreinlætisvörum seldum á Íslandi rennur óskiptur til þessa verkefnis.
Heilsa tryggir lágmarksupphæð að fjárhæð kr. 300.000 árlega í verkefnið en það er von okkar að sjóðurinn vaxi og dafni og hægt verði í framtíðinni að veita árlega hærri fjárhæðir til umhverfisverkefna á Íslandi.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram 1x á ári eins og fyrr segir og fer úthlutunin fram 25 apríl ár hvert á "degi umhverfisins" en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn.
Dagur unhverfisins
Reglur um úthlutun úr sjóðnum: Heilsa og Ecover munu njóta ráðgjafar frá Umhverfisráðuneytinu við faglegt val á verkefnum en sérstaklega verður horft til verkefna er snúa að bættri umhverfisvitund t.d. þróun námsefnis, rannsókna á vatnasvæðum eða strandlengju til að sporna við óæskilegri umgengni s.s. frárennsli eða öðrum mengandi þáttum, hreinsun ákveðins landsvæðis, endurvinnslu úrgangs eða eitthvað annað verkefni sem klárlega mun nýtast til verndar íslenskri náttúru. Eingöngu er úthlutað til verkefna er tengjast náttúru Íslands. Engar kröfur eru gerðar um sérstaka menntun umsækjanda heldur verður horft á hvert verkefni fyrir sig, hvernig það er skipulagt og hversu líklegt það er til að skila sem bestum árangri fyrir íslenska náttúru. Með því að skila inn ítarlegri umsókn um verkefnið er það líklegra til að verða valið, því fagleg vinnubrögð og áreiðanleiki skipta miklu máli við ákvörðun um val á því verkefni sem verður styrkt hverju sinni.
Samstarfsaðilar að þessu verkefni eru Heilsa, Umhverfisráðuneytið og söluaðilar á Ecover vörum um land allt.
Ecover fæst á eftirtöldum stöðum
Blómaval, Fjarðarkaup, Garðheimar, Heilsuhúsið, Heilsuver, Krónan og Maður lifandi.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Heilsu í síma 533 3232 eða með því að senda tölvupóst á heilsa@heilsa.is
Ná í umsóknareyðublað
Heimasíða Ecover






