Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Umhverfisstyrkur Ecover og Heilsu

Ecover umhverfisverkefniHeilsa hefur í samstarfi við Ecover ákveðið að stofna sjóð sem mun styrkja verkefni er stuðla að bættri umhverfisvitund á Íslandi. Valið verður verkefni sem mun miða að bættri umhverfisvitund, t.d. þróun námsefnis, rannsókna á vatnasvæðum eða strandlengju til að sporna við óæskilegri umgengni s.s. frárennsli eða öðrum mengandi þáttum, hreinsun ákveðins landsvæðis, endurvinnslu úrgangs eða eitthvað annað verkefni sem klárlega mun nýtast til verndar íslenskri náttúru.

Verkefnið er unnið í samstarfi við og stutt af Umhverfisráðuðneytinu
Heilsa og Umhverfisráðuneytið hafa gert með sér samkomulag um að Umhverfisráðuneytið aðstoði við kynningu á verkefninu og veiti faglega ráðgjöf við val á umsóknum til að tryggja að sem bestur árangur náist og fjármunir nýtist sem best.

Heilsa tryggir lágmarksstyrk að fjárhæð 300 þúsund kr. og verður veittur einn styrkur á ári. Að öðru leiti er styrkveitingin byggð á sölu ársins á Ecover vörum og vonandi tekst að safna hærri upphæð þegar tímar líða fram. Hægt er að ná í umsóknareyðublöð hér á vef heilsu.

Samstarfsaðilar að þessu verkefni eru Heilsa, Umhverfisráðuneytið og söluaðilar á Ecover vörum um land allt.

Ecover fæst á eftirtöldum stöðum
Blómaval, Fjarðarkaup, Garðheimar, Heilsuhúsið, Heilsuver, Krónan og Maður lifandi.

Lesa meira um verkefnið og/eða sækja um umhverfisstyrk Ecover og Heilsu





Forsíđa:

Frćđsla Umhverfiđ Umhverfisstyrkur Ecover og Heilsu

Toppmynd

Nánar um Maldon

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta