Fréttir
9.10.2011
Góđ heilsa ekki forréttindi
,,Það eru forréttindi að vinna hjá fyrirtæki sem lætur jafn vel til sín taka í heilbrigðis- og umhverfismálum," segir Þórarinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri Heilsu ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu, innflutningi og dreifingu meðal annars á heilsutengdum vörum.
11.5.2011
Vinningshafar í Lukkuleik Ecover og Heilsu
Við vorum að draga vinningshafa í Lukkuleik Ecover og Heilsu
10 vinningshafar hljóta STÓRAN gjafapakka frá okkur, en hann inniheldur:
· Ecover fljótandi þvottaefni 1,5 ltr
· Ecover glugga- og glerhreinsi 500ml
· Ecover uppþvottavélartöflur 500g
· Ecover salernishreinsi 750ml
· Ecover baðherbergishreinsi (sprey) 500ml
· Ecover uppþvottalög Camomile 500ml
· Ecover blettahreinsi 200ml
28.4.2011
Norrćna húsiđ fćr úthlutađ úr umhverfisverndarsjóđi Ecover og Heilsu
_1524544205.jpg)
Helga Guðmundsdóttir vörusstjóri Ecover á Íslandi veitti styrkinn við hátíðlega athöfn á umhverfishugvekju í Fríkirkjunni í gær. Þuríður Helga Kristjánsdóttir tók við 300 þúsund króna styrk fyrir hönd verkefnisins "endurbætur á friðlandinu í Vatnsmýri".
Verkefnið er metnaðarfullt og með því að styrkja þetta verkefni náum við að styðja við bæði rannsóknir og framkvæmdir, en markmið verkefnisins er m.a. að tryggja tjarnarfuglum öruggt varpland, endurnýja og viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika á svæðinu sem og að auka áhuga og þekkingu almennings á náttúrusvæðum innan og utan borgarinnar.
4.4.2011
Ecover tekur virkan ţátt í Grćnum apríl:)
Heilsa tekur þátt í grænum apríl með því að leggja áherslu á og kynna Ecover fyrir landsmönnum. Ecover er alhliða hreingerningarefni fyrir heimili og fyrirtæki.
30.11.2010
Hafđu áhrif og láttu gott af ţér leiđa

17.9.2010
Vanmerktur ofnćmis- og óţolsvaldur - innihaldsefni úr soja
2 vinsælar vörur frá Heilsu, Hárkúr og Barna Vít, innihalda soja án þess að það komi nægjanlega vel fram á umbúðum. Ráðinn hefur verið bót á þessu og er verið að taka vanmerktar vörur úr hillum verslana og setja rétt merktar vörur í staðinn.
Við biðjumst velviringar á þessu. Vörurnar eru algjörlega skaðlausar nema þeir sem eru með ofnæmi fyrir soja ættu ekki að neyta þeirra, þrátt fyrir að um mjög lítið magn innihaldsefna sé að ræða.
Ţeir sem eru með ofnæmi fyrir Soja og hafa keypt vöruna geta snúið sér til Heilsu og verður þeim endurgreitt að fullu.
6.9.2010
Heilsa verđur á sýningunni "Heilsa, húđ og hár" í Smáralind

Hápunkturinn hjá okkur er koma Udo Erasmus til landsins en hann mun halda nokkra fyrirlestra í Smáralind um Omega fitusýrur og áhrif þeirra á heilsu manna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla til að öðlast betri þekkingu á því hvernig fitusýrur almennt virka. Udo Erasmus hefur fengið fjölda viðurkenninga, m.a. fyrir rannsóknir og þróun á ferskum olíum til manneldis en þar er um að ræða sérstakar blöndur af Omega 3●6●9 olíum. Ljóst er að hjartasjúkdómar og of há blóðfita er meðal helstu meinsemda okkar tíma. Það er því tvímælalaust mikilsvert að fá slíkan fræðimann til landsins og tækifæri fyrir þá sem vilja fræðast um hvernig Omega fitusýrur geta komið að gagni við að bæta heilsuna. Udo Erasmus hefur verið heiðraður fyrir framúrskarandi störf undanfarna tvo áratugi. Til marks um mikil áhrif hans að undanförnu eru jákvæð skrif vísindamanna í virtustu tímarit og blöð, en fullyrða má að í engan næringarfræðing hafi verið vitnað jafn mikið á síðustu árum.
27.6.2010
Hreinsiefni og umhverfiđ

20.6.2010
Efni í snyrtivörum sem best er ađ forđast?
4.6.2010
Kastađ til bata hleypt af stokkunum







