Fréttir
19.5.2010
Skilum drykkjarumbúðum í endurvinnsluna
Margir vita ekki að það er hægt að skila öllum drykkjarumbúðum frá Heilsu í endurvinnsluna. Vinsamlega hjálpið okkur að vernda náttúruna og skilið inn umbúðum. Þær vörur sem um ræðir eru t.d. Biotta, Amé, Whole Earth gos, Manic Organic, James White, Biona safar.
Verum umhverfisvæn og göngum vel um landið.
26.4.2010
Fleiri vörur frá Kallo og Whole Earth

21.4.2010
Raw Health hráfæðið nú fáanlegt á Íslandi
9.11.2009
Vinningshafi nóvembermánaðar í Udo's Choice happaleiknum
Það var Guðfinna Helgadóttir sem var dregin út úr Udo's choice happaleiknum í nóvember! Við hjá Heilsu óskum Guðfinnu til hamingju með það og hún mun fá ársbirgðir af uppáhalds Udo's Choice vörunni sinni að launum!
Til hamingju með vinninginn Guðfinna!
29.10.2009
Er heppnin með þér?
Heilsa ehf. og Udo‘s Choice hafa nú hrundið af stað leik sem getur heldur betur komið sér vel fyrir þá sem hugsa um heilsuna. Fram að áramótum munum við draga út einn heppinn vinningshafa á mánuði og mun sá heppni fá ÁRSBIRGÐIR (12 stykki) af uppáhalds Udo‘s Choice vörunum sínum. Við munum draga út vinningshafa 3. október, 6. nóvember og 9.desember.
9.10.2009
Goji Ber
Heilsa hefur hafið innflutning á Goji berjum frá
Organic Days. Berin eru fáanleg í Heilsuhúsinu, og flestum betri
heilsubúðum landsins.Goji ber (Lycium Eleganus), stundum einnig nefnd úlfaber, hafa verið notuð af heilurum Himalayafjalla og í Asískum lækningum í þúsundir ára.
Talið er að andoxunarefnið, polysaccharides, í Goji berjunum sé sérlega afkastamikið, styrki frumurnar hratt og örugglega og styrki þar með ónæmiskerfið á undrahraða.
6.10.2009
Vinningshafi októbermánaðar í Udo's Choice happaleiknum
Það var Guðrún Gígja Pétursdóttir sem var dregin út úr Udo's choice happaleiknum í október! Við hjá Heilsu óskum Guðrúnu Gígju til hamingju með það og hún mun fá ársbirgðir af uppáhalds Udo's Choice vörunni sinni að launum!
Til hamingju með vinninginn Guðrún Gígja!
3.7.2009
Amé drykkurinn kominn í enn fallegri umbúðir
![]()
![]()
Núna er lífsstílsdrykkurinn Amé komin í nýjar umbúðir,hann er nú í handhægum 750 ml flöskum, en þær passa betur í hillur í ískápnum og er hentugur til að grípa með í veisluna eða fyrir kósíkvöld heima.
30.6.2009
MÁDARA - grænasta fyrirtæki Lettlands 2009
Snyrtivöruframleiðandinn MÁDARA var á dögunum verðlaunað
fyrir að vera "Grænasta fyrirtækið" árið 2009 í
Lettlandi. Fyrirtækið fékk hæsta skorið af 150 fyrirtækjum í
flokknum "Ábyrgð gagnvart umhverfinu" og segir
LotteTisenkopfa, annar stofnandi fyrirtkækisins, að ábyrgð gagnvart
umhverfinu sé einn af hornsteinum sjálfbærs atvinnureksturs.
12.6.2009
Granovita Soja jógúrt
Granovita soja jógúrt er komið í nýjar umbúðir, sama góða br
agðið bara litaglaðari og bjartari umbúðir. Grano vita soja
jógúrtið er búið að vera á íslenska markaðinum í 7 ár og hafa
vinsældir jógúrtsins sífellt aukist. Heilsa ehf hefur verið með
umboðið hér á landi öll árin og hefur samvinna þessara fyrirtækja
verið með eindæmum góð alla tíð.






