Fréttir
2.4.2008
Liðaktín komið í búðir!
LIÐ-AKTÍN QUATRO
-kemur í stað þess gamla
Heilsa hefur framleitt og selt Liðaktín Extra sem notið hefur
mikilla vinsælda hjá þeim sem eiga við liðvandamál að stríða.
Liðaktín var samsett úr glúkósamíni og kondróitíni. Nýlega var
glúkósamín skilgreint sem lyf á Íslandi. Þetta þýðir að ekki er
lengur heimilt að selja það í almennum verslunum eða heilsubúðum.
Vegna þessa var ákveðið að setja á markað nýtt Liðaktín með nýjum
innihaldsefnum í stað þess gamla.
Nýja liðaktínið er öflugt bætiefni með völdum virkum efnum sem
gefa fjórfalda virkni fyrir liðina. Nýja Liðaktínið kemur í stað
þess gamla og er dagskammtur 2 töflur.
Hyaluron sýra
Í öllum liðamótum er seigfljótandi vökvi sem er kallaður liðvökvi.
Hans helsta hlutverk er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum og
liðbrjóski. Hyaluron sýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er
einnig að finna í brjóski. Eitt mikilvægasta hlutverk hennar er að
auka seigju liðvökvans, draga úr núningi og óþægindum og tryggja
mýkt í hreyfingum liðamóta.
Kondróítín súlfat
Kondróítín súlfat er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski.
Helsta verkun kondróítíns er talin felast í því að hemja
iðurbrotshvata sem brjóta niður brjósk í liðum. Það er einnig talið
hamla bólgumyndun og vinna gegn slitgigt.
Omega-3
Omega-3 inniheldur fitusýrurnar EPA og DHA og talið er að
Omega-3 geti dregið úr stirðleika og verkjum í liðum.
Rose - Hip + C-Vítamín
Rose hip hefur reynst vel m.a. til að draga úr verkjum hjá þeim
sem þjást af liðvandamálum og vinnur vel með C-vítamíni sem hefur
mikilvægu hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni.
Kollagen er prótín sem er meginuppistaðan í tengivefjum
líkamans.
Hver dagskammtur inniheldur:
Kontróítín súlfat - 800 mg
C - Vítamín - 400 mg + Rose Hip 600 mg
Omega 3 - 200 mg
Hyaluron sýra - 50 mg






