Fréttir
4.12.2008
Verðlaunavörur hjá Heilsu
Í nóvember tímariti Better Nutrition (http://www.betternutrition.com/ ), sem er stærsta óháða heilsutímaritið í Ameríku, var tilkynnt um val blaðsins á 50 framúrskarandi fæðubótarefnum. Flokkarnir sem fæðubótarefnin eru í eru frá hjartaheilsu og ónæmiskerfis til verkjastilla og krabbameins forvarna. Nicole Brecka, aðal ritstjóri blaðsins segir þeirra markmið vera að: gefa innkaupafólki heilsuvöruverslana ráðleggingar um hágæða, áhrifaríkar vörur í ýmsum flokkum. Að versla fæðubótarefni er ekki alltaf einfalt; í raun er það oft yfirþyrmandi upplifun. Verðlaun okkar munu hjálpa verslunareigendum að vera ánægð með sín innkaup, sem og að kynna þeim nýjar vörur."
Við valið á vinningsvörunum, framkvæmir Better Nutrition pallborðs viðtöl við sérfræðinga, þar á meðal náttúruþerapista, lækna og sérfræðinga í heilsuiðnaðinum. Þessir sérfræðingar ljúka einnig við ítarlega könnun varðandi fæðubótarefni og gefa endurgjöf á ýmis fæðubótarefni í 31 flokki.
Meðal verðlaunahafa eru:
Floradix Calicum Magnesium (Saludynam) - í flokki homeopatiu.
Af hverju vann þessi vara?
Þetta sérlega ljúffenga fljótandi steinefnablanda er full af
sinki, D-vítamíni og jurtum og þægileg að tileinka sér. Hún er góð
uppspretta kalks og magnesíum og einnig inniheldur hún
vatnsleysanleg þykkni úr læknakólfi (i.e. hibiscus), kamillu,
fennel, spínati sem og mangó- og appelsínusafaþykkni. Það
mikilvægasta er að jafnvægið milli kalks og magnesíum er hárrétt.
Bónus:
Floradix inniheldur ekki alcohol, rotvarnarefni eða aukefni.
Udos Choice Udos Oil 3,6,9 blend - Í flokki fitusýra
Af hverju vann þessi vara?
Nauðsynlegar fitusýrur hafa sýnt fram á að þær bæti allt frá
frammistöðu íþróttafólks til svefnmynsturs og lundarfars. Skilyrðin
fyrir því eru að taka þarf inn fullnægjandi magn og í hlutföllunum
2:1 af omega 3 fitusýrum á móti omega 6 fitusýrum. Udos Olíublandan
3,6,9 gefur hin réttu hlutföll, og er þar að auki gerð úr
náttúrulegum kaldpressuðum olíum eins og lífrænum hörfræ- og
kvöldvorrósarolíu. Og af hverju Udo, gætu menn spurt? Hann er
heimsþekktur sérfræðingur og rannsakandi nauðsynlegra fitusýra -
lítið á bók hans Fats That Heal, Fats That Kill.
Bónus:
Udos Choise 3,6,9 blandan er fáanleg bæði í olíuformi og
hylkjum.
A. Vogel Echinacea - Í flokki jurta
Af hverju vann þessi vara?
Þessi vara sem styrkir ónæmiskerfið er framleidd í Sviss, úr
ferskum, lífrænt ræktuðum sólhatti sem er ræktaður af
jurtasérfræðingum fyrirtækisins. Sólhatturinn er laus við
plágueitur, meindýraeitur, sveppaeitur og tilbúinn áburð.
Sólhatturinn er uppskorinn á kjörtíma og unninn innan 24 tíma, áður
en hann þornar upp; þessi vinnsluaðferð tryggir að virk efni tapast
ekki.
Bónus:
Skammtarinn sem er í flöskunni tryggir nákvæma skammta.






