Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Fréttir

22.12.2008

Við óskum þér góðrar meltingar um jólin

Nú nálgast jólin óðfluga. Þessi frábæri tími sem flestir eyða í faðmi fjölskyldunnar og njóta samverunnar með góðum mat og gleðistundum, getur reynst meltingunni okkar erfiður. Maturinn sem við látum ofan í okkur yfir jólin er í mörgum tilfellum erfitt að melta. Mikið er um reyktan og saltaðan mat og fylgir því oftar en ekki bjúgsöfnun og meltingartruflanir. Góð melting er undirstaða þess að okkur líði vel og því er vel á sig leggjandi að halda henni góðri. Svo er það blóðsykurinn, hann getur líka sveiflast mikið og eru margir viðkvæmir fyrir þeim sveiflum.
Það er margt sem hægt er að gera til að reyna að létta líkamanum þessa erfiðu daga. Hér eru 10 einfaldir punktar sem geta hjálpað:

  1. Borðaðu fyrir sjálfan þig!
  2. Ekki borða vegna þess að einhver annar ætlast til þess að þú borðir matinn sem á borðum er. Það ert þú sem situr uppi með afleiðingarnar ef þú borðar mat sem þú þolir ekki eða magn sem þú þolir ekki.
  3. Ekki fá þér meira á diskinn vegna þess að gestgjafinn óskapast yfir því hversu mikið sé eftir og biður fólk um að borða endilega meira!
  4. Borðaðu þegar þér finnst þú þurfa að borða og borðaðu eins mikið og þér finnst þú þurfa að borða. Þú þarft ekki að tapa þér í ofgnóttinni sem við þér blasir um jólin, haltu þig við þínar venjur og beygðu aðeins af leið ef þér finnst það vera þess virði.
  5. Reyndu að takmarka nart á milli mála. Fáðu þér hnetur (fullar af næringu og hollum fitusýrum) og ávexti ef þig vantar gott í kroppinn, er það ekki jólalegt?
  6. Tyggðu matinn hægt og vel. Í munninum fer fyrsta skref meltingarinnar fram. Þegar þú tyggur matinn blandast við hann munnvatn sem í er amylasi, meltingarensím sem hjálpar okkur að brjóta niður sterkju og glýkógen. Notaðu tennurnar til að mylja matinn og blanda munnvatni saman við hann.
  7. Ekki drekka mikið með matnum. Einn eða tveir sopar geta verið nauðsynlegir en leyfðu líkamanum að framleiða munnvatn til að bleyta upp í matnum.
  8. Þannig bætum við þetta fyrsta skref meltingarinnar.
    Mundu að það besta sem þú drekkur er vatn. Drekktu nóg af því. Drekktu það á morgnana og á milli máltíða, ekki með matnum.
  9. Borðaðu matinn sitjandi í rólegu umhverfi. Forðastu sjónvarpsgláp eða djúpar samræður á matartímum. Slakaðu á, njóttu máltíðarinnar og borðaðu hægt. Reyndu að borða ekki 2 klukkutímum áður en gengið er til hvílu (4 tímar eru enn betri). Meltingarfærin þurfa líka sína hvíld, gefðu þeim þann tíma sem þau þurfa til að melta matinn og hvíla sig.
  10. Mundu að losa þig við úrgang í það minnsta einu sinni á dag! Ákjósanlegur úrgangur er léttur í sér og sekkur ekki í posturlínsskálina. Ef úrgangurinn sekkur fljótt þá er ráð að borða 1-3 matskeiðar af muldum hörfræjum á dag.
Náttúran sér um sína og til eru nokkur náttúruleg efni sem geta hugsanlega gert jólahátíðina bærilegri:
  • Meltingargerlar (acidophilus, probiotics eða multidophilus) geta gert ótrúlega góða hluti. Marga skortir vinveitta gerla í flóruna. Ef óvinveittu gerlarnir komast í meirihluta er ekki við góðu að búast.
  • Hollar fitusýrur (omega) geta hjálpað meltingunni og hjarta- og æðakerfi sem og aukið fitubrennslu.
  • Nettlu safi (einnig hægt að fá í hylkjum) hefur hreinsandi eiginleika og dregur úr vökvasöfnun. Góður til að draga úr bjúgmyndun.
  • Dandelion safi (túnfíflasafi) hefur reynst draga úr vökvasöfnun, örva framleiðslu galls og draga úr meltingartruflunum.
  • Birkisafi er m.a. talinn auka þvagflæði og draga þannig úr vökvasöfnun í líkamanum.
  • Kanill er sannkallað jólakrydd en hann hefur reynst vel til að jafna sveiflur í blóðsykri og rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að hann lækki kólesteról. Notið því endilega kanil frjálslega um jólahátíðirnar eða drekkið Yogi Tea Classic.
  • Svartur pipar hefur fest sig í sessi sem aðstoðarefni fyrir meltingarfærin. Hann virðist vera sérlega áhrifaríkur við að bæta meltinguna. Hann eykur seytingu ákveðinna meltingarsýra og bætir þannig meltingu fæðunnar þegar hún kemur í magann. Einnig er þekkt að hann dregur úr myndun á iðragasi - algerlega nauðsynlegur til að koma í veg fyrir óþægileg augnablik í jólaboðunum!
Heilsa óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og góðrar heilsu á nýju ári!


Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Fréttir

Toppmynd

Nánar um Yogi

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta