Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Fréttir

12.5.2009

Áhugaverður fyrirlestur þriðjudaginn 19. maí

Dr.NatashaÁhrif mataræðis á andlega heilsu

Dr. Natasha Campbell-McBride heldur tvo fyrirlestra í Bíósalnum á Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn 19.maí kl. 18:00 og kl. 20:00

Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð með sérmenntun í næringarfræði og taugasjúkdómafræði og sérhæfð í næringarfræði fyrir fullorðna með meltingar- og ónæmissjúkdóma.

Hún skrifaði bókina "Meltingarvegurinn og geðheilsa" eftir að hafa náð undraverðum árangri með breyttu mataræði og notkun bætiefna fyrir son sinn sem greindur var með alvarlega einhverfu. Reynsla hennar hefur sýnt að mataræði er mjög mikilvægur þáttur í að hjálpa börnum og fullorðnum með andlega kvilla og hefur hún unnið mikið frumkvöðlastarf varðandi notkun próbíótískra bætiefna við meðferð á andlegum vandamálum. Fyrirlesturinn er almennur og ætti að gagnast öllum sem vilja borða sér til bata. bókin

Aðgangseyrir er aðeins 1000 krónur og fer skráning fram á netfanginu: johannamjoll@simnet.is

Athugið að fyrirlesturinn er á ensku.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Fréttir

Toppmynd

Nánar um Biotta

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta