Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Fréttir

6.9.2010

Heilsa verđur á sýningunni "Heilsa, húđ og hár" í Smáralind

Fyrirlestrar Udo Erasmus

Laugardagur 11. September (Smárabíó salur nr. 5 ) fyrir fagfólk kl.  9:00 - 9:40

Laugardagur 11. September (Smárabíó salur nr. 5) fyrir almenning kl. 11:00 - 12:00

Laugardagur 11. September (Vetrargarðurinn á sýningarsvæðinu) kl. 13:30 - 14:00

Sunnudagur 12. September (Smárabíó salur nr. 5 ) fyrir almenning kl.11:00 - 12:00

Heilsa ehf. hefur verið starfrækt í 40 ár og er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á lífrænum matvörum, jurtum, fæðubótarefnum, vistvænum snyrtivörum og hreingerningarvörum. Heilsa flytur inn vörur frá flestum Evrópulöndum, Skandinavíu, Bandaríkjunum og Kanada auk þess að sjá um dreifingu fyrir íslensk fyrirtæki. Gæðin eru í fyrirrúmi og er nánast öll matvara lífrænt vottuð og vítamínin eru ýmist lífræn eða náttúruleg, án auk- og rotvarnarefna. Vörurnar frá Heilsu fást í öllum heilsubúðum, apótekum og matvöruverslunum á Íslandi. Þórarinn Þórhallsson, er framkvæmdastjóri Heilsu. „Sýningin Heilsa, húð og hár er kjörið tækifæri til að gera okkur sýnileg, hitta viðskiptavini okkar, kynna vörur og um leið nýta tækifærið og gefa fólki kost á að prófa vörurnar sem eru í boði. Þær vörur sem við erum með á sýningunni eru samt aðeins brot af því sem við bjóðum.

Hápunkturinn hjá okkur er koma Udo Erasmus til landsins en hann mun halda nokkra fyrirlestra í Smáralind um Omega fitusýrur og áhrif þeirra á heilsu manna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla til að öðlast betri þekkingu á því hvernig fitusýrur almennt virka. Udo Erasmus hefur fengið fjölda viðurkenninga, m.a. fyrir rannsóknir og þróun á ferskum olíum til manneldis en þar er um að ræða sérstakar blöndur af Omega 3●6●9 olíum. Ljóst er að hjartasjúkdómar og of há blóðfita er meðal helstu meinsemda okkar tíma. Það er því tvímælalaust mikilsvert að fá slíkan fræðimann til landsins og tækifæri fyrir þá sem vilja fræðast um hvernig Omega fitusýrur geta komið að gagni við að bæta heilsuna. Udo Erasmus  hefur verið heiðraður fyrir framúrskarandi störf undanfarna tvo áratugi. Til marks um mikil áhrif hans að undanförnu eru jákvæð skrif vísindamanna í virtustu tímarit og blöð, en fullyrða má að í engan næringarfræðing hafi verið vitnað jafn mikið á síðustu árum.

Vörukynningar á Sýningarsvæði

Ecover umhverfisvænar hreinlætisvörur fyrir heimili og fyrirtæki hafa lágmarks áhrif á umhverfið en taka óhreinindi föstum tökum. Á sýningunni munum við kynna Ecover vörurnar og veita upplýsingar um virkni og áhrif þeirra á umhverfið. Hægt verður að fá prufur. Sýningargestir fá afsláttarmiða sem gildir í Blómaval og fá menn þá frían fisk hjá dýrabúðinni í Blómaval ef menn versla tvær eða fleiri Ecover vörur í Blómaval.

Udo‘s olía er kjörin blanda af lífrænum fitusýrum sem eru lífsnauðsynlegar fyrir líkamann. Við verðum með Boost bar þar sem fólk getur smakkað gómsætan heilsuhristing fullan af próteini og fitusýrum, búinn til úr Udo‘s olíu og lífrænu skyri frá Bio Bú, ásamt upplýsingum hvernig fitusýrur eru mikilvægar fyrir starfsemi líkamans. Sýningargestir fá afsláttarmiða sem þeir geta framvísað í Heilsuhúsunum og fengið 20% afslátt af Udo‘s Choice vörulínunni.

Yogi te. Kjörið tækifæri til að koma við á básnum hjá Heilsu og smakka nokkrar frábærar bragðtegundir af Yogi te með yndislegum seyðandi jurtablöndum sem eru mikilvægar fyrir heilsuna og láta þér líða vel. Fjarðarkaup bjóða öllum 20% afslátt af Yogi te til 30. september.

Salus jurtasafarnir eins og Floradix, Floravital, Galexier, Saludinam og Intest Care eru 100% lífrænir jurtasafar sem þjóna mikilvægu hlutverki varðandi járn og kalkbúskapinn auk þess að vera mikilvægir fyrir heilbrigða meltingu, brennslu og almennt jafnvægi í líkamanum. Kjörið tækifæri til að smakka og fá ráðgjöf um virkni. Sýningargestir geta fengið miða þar sem boðinn er 29% afsláttur í Apótekaranum til 30. september.

Cocowell er einn heitasti orkudrykkurinn í dag, líkamsræktarþjálfarar heimsfrægra stjarna á við Madonnu og Gwyneth Paltrow mæla með kókoshnetuvatni til að hlaða líkamann af orku, steinefnum og vítamínum á náttúrulegan og kaloríusnauðan hátt. Kókoshnetuvatnið frá Cocowell er laust við öll aukefni eins og litarefni og viðbættan sykur. Eini náttúrulegi íþrótta- og orkudrykkurinn á markaðnum. Smakk í boði og góð ráð um hvernig best sé að nota Cocowell.

Xylitol er eitt sniðugasta efni á markaðinum í dag og um helgina kynnum við vörur frá Xlear sem er einn fremsti framleiðandi vara unnum úr xylitoli. Við verðum með Spry tyggigúmmí sem verndar tennurnar gegn skemmdum, Xlear nefúðann sem hjálpar til við að halda bakteríum frá efri öndunarveginum og XyloSweet sem er náttúrulegt sætuefni úr 100%  xylitoli, hann kemur í stað sykurs í flesta matargerð og bakstur.

Original Arctic Root er ein vinsælasta lækningajurt í heiminum í dag gegn streitu og til að auka líkamlega getu til að takast á við krefjandi verkefni. Auk þess er hún góð við þunglyndi og getur gagnast þeim sem eru með einkenni athyglisbrests. Þeir sem hafa áhuga á að prófa þessa vöru ættu að kíkja á básinn hjá Heilsu og fá upplýsingar um þessa einstöku vöru.

Innlendir birgjar Heilsu eru Saga Mecica, Villimey og Sóley og verða fyrirtækin með Heilsu á sýningunni, enda sér Heilsa um dreifingu fyrir þau.

Saga Medica er löngu þekkt fyrir vörurnar Saga Pro, Angelica og Saga Memo. Sífellt eru nýjar vörur í þróun hjá fyrirtækinu og lækningamáttur Hvannarinnar er landsmönnum að góðu kunn, enda eru vörur Saga Medica meðal vinsælustu vörum á markaðnum í dag.

Sóley Eiríksdóttir leik- og grasakona hefur slegið í gegn með lífrænum snyrtivörunum undir merkjum Sóley Organics og er kjörið að koma við á básnum og skoða úrvalið og fá ráðleggingar.

Frá galdrakonunni henni Aðalbjörgu Villimey eru svo vörurnar Bumbu galdur, Bossagaldur og fl. löngu orðið landsþekkt og með vinsælustu smyrslum á markaðnum í dag. 100% lífrænt vottað og hreint. Þessar frábæru vörur eru nú komnar í nýjar umbúðir sem eru umhverfisvænar.




Forsíđa:

Fréttir

Toppmynd

Nánar um Hale & Hearty

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta