Fréttir
30.11.2010
Hafđu áhrif og láttu gott af ţér leiđa
Heilsa hefur í samstarfi við Ecover ákveðið að stofna sjóð sem mun styrkja verkefni er stuðla að bættri umhverfisvitund á Íslandi. Sjóðurinn er fjármagnaður með sölu á Ecover vörum á Íslandi og renna 60 kr af hverri seldri vöru af Ecover í sjóðinn. Úthlutun úr sjóðnum fer fram á degi umhverfisins þann 25. apríl ár hvert. Valið verður verkefni sem mun miða að bættri umhverfisvitund, t.d. þróun námsefnis, rannsókna á vatnasvæðum eða strandlengju til að sporna við óæskilegri umgengni s.s. frárennsli eða öðrum mengandi þáttum, hreinsun ákveðins landsvæðis, endurvinnslu úrgangs eða eitthvað annað verkefni sem klárlega mun nýtast til verndar íslenskri náttúru. Lesa meira






