Fréttir
4.4.2011
Ecover tekur virkan ţátt í Grćnum apríl:)
GRÆNN APRÍL er verkefni sem hópur áhugafólks um umhverfismál hrinti í framkvæmd. Markmiðið er að fá ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálfbæra framtíð á Íslandi. Með sameinuðu átaki er ætlunin að gera umhverfisumræðuna skemmtilega, líflega og kúl fyrir alla Íslendinga.
Heilsa tekur þátt í grænum apríl með því að leggja áherslu á og kynna Ecover fyrir landsmönnum. Ecover er alhliða hreingerningarefni fyrir heimili og fyrirtæki.
Við verðum með fjölbreytta viðburði er tengjast umhverfismálum í apríl en hápunkturinn er umhverfisstyrkur Ecover og Heilsu. Síðasti skiladagur umsókna er 17 apríl og verður styrkurinn veittur 30 apríl nk.
Ecover hreingerningarefnin eru með mjög góða virkni og gefa ferskan ilm. Þau eru einstaklega mild fyrir heilsu dýra og manna og eru ekki skaðleg fyrir umhverfið.
Tékklisti hreinsiefnanna
Ecover hefur verið án fosfor í 30 ár.
Eitt af helstu vandamálum í umhverfismálum í dag er fosfórmengun en til stendur að banna fosfor á Íslandi 2013. Ecover hreinlætisvörurnar hafa verið lausar við fosfor síðastliðin 30 ár.
Fósfór er ein af orsökum OFAUÐGUNAR. Þá eykst þörungavöxtur í ám, vötnum og sjó. Þessi mengun hefur leitt af sér „dauð hafsvæði" þar sem ekkert líf finnst lengur. Dauðu svæðin hafa stækkað hratt frá 1960, eru nú orðin meira en 245 þúsund ferkílómetrar og hafa þau nú alvarleg áhrif á vistkerfi sjávar.
Hvað segja Tolli og Guðrún Bergmann?
Fleiri myndbönd um Ecover!
Green Clean:)






