Fréttir
28.4.2011
Norræna húsið fær úthlutað úr umhverfisverndarsjóði Ecover og Heilsu
Við höfum nú farið yfir allar umsóknirnar og niðurstaðan var að í ár skyldi verkefnið „Endurbætur á Friðlandinu í Vatnsmýri" hljóta styrkinn. Það er Norræna Húsið sem stendur fyrir því verkefni. Verkefnið er metnaðarfullt og með því að styrkja þetta verkefni náum við að styðja við bæði rannsóknir og framkvæmdir, en markmið verkefnisins er m.a. að tryggja tjarnarfuglum öruggt varpland, endurnýja og viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika á svæðinu sem og að auka áhuga og þekkingu almennings á náttúrusvæðum innan og utan borgarinnar.
Það var alls ekki létt verk að vinna úr umsóknunum sem okkur bárust þar sem allar umsóknirnar höfðuðu til okkar á einhvern hátt og við stóðum okkur að því að vilja styrkja mörg verkefni. Til að fjármagnið nýtist sem best og um muni fyrir styrkþega höldum við okkur þó við þá reglu sem við settum okkur í upphafi að styrkja eingöngu eitt verkefni ár hvert. Umsóknirnar sem okkur bárust voru af margvíslegum toga og að sama skapi stærðargráða þeirra. Það er greinilegt að margir hafa áhuga á að vinna að umhverfisvernd að einhverju tagi á Íslandi og er það gleðilegt. Þar sem við áætlum að úthluta úr styrknum árlega, erum við strax farin að hlakka til að úthluta styrknum að ári. Við hvetjum nýja og núverandi umsækjendur til að senda inn umsókn að ári.






