Vörumerki Heilsu
Udo's Choice
Vörurnar frá Udo's Choice hafa vakið verðskuldaða athygli viðskiptavina okkar enda lífrænar, lausar við hveiti, mjólkurvörur, ger og erfðabreytt innihaldsefni.
Udo‘s Choice vörulínan samanstendur af:
Udo´s Choice 3•6•9 olíublöndu, en innihald hennar er hörfræolía, sólblómaolía, sesamolía, kókoshnetuolía, kvöldvorrósarolía, soja lesitín, hrísgrjónaklið og fræolía, rúgklíð og fræolía, sem og tocotrienols. Fólk er sífellt meðvitaðra um mikilvægi fitusýra fyrir líkamann og hvaða fitusýrur það eru sem nauðsyn er að bæta við daglega neyslu. Samkvæmt rannsókn sem gerð var í Danmörku minnkar neysla á fullnægjandi skammti af Udo's 3•6•9 olíunni líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, eykur orku og þrek og einnig almenna heilsu og lífsgæði. Athygli vakti að breytingar á hjarta- og blóðrásarkerfinu voru ótvírætt jákvæðar á 8-15 vikum hjá þeim olían var reynd á og ekki var neinu bætt við lífsstíl fólksins nema neyslu olíunnar. Tilvalið er að blanda olíunni út í próteindrykki, grænmetis- eða ávaxtahræring (shake) eða ávaxtasafa og Beyond Greens. Dagsskammtur er 1 matskeið fyrir hver 25 kg. líkamsþyngdar. Athugið að eiginleikar olíunnar tapast ef hún er hituð.
Udo‘s Choice Beyond Greens, en þetta græna ofurduft inniheldur 45 frábær græn gæðaefni, meðal annars lífsnauðsynlegar fitusýrur, trefjar, kjarnafæði, jurtanæringarefni, andoxunarefni og meltingarensím sem eru undirstaða heilsusamlegs mataræðis. Trefjarnar bæta meltinguna og þannig stóreykst upptaka næringarefna og frásog. Það hefur síðan áhrif á líkamsorkuna, snerpu hugans, þolið og ónæmiskerfið. Blandan er upplögð fyrir þá sem þurfa skyndilega á aukinni orku að halda, neyta lítils grænfæðis, þjást af sleni eða þreytu og einnig er Beyond Greens gott til að slá á nart þörfina. Gott er að blanda 1 matsk. af Beyond Greens saman við lífrænan eplasafa eða annan ávaxtasafa, og sturta í sig þegar orkuleysið fer að gera vart við sig, sáldra út á salatið eða annan mat sem ekki er hitaður. Dagsskammtur er 2 desertskeiðar allt að 3x á dag. Athugið að eiginleikar Beyond Greens njóta sín ekki til fulls ef því er blandað við sítrusávexti eða ef Beyond Greens er hitað. Einnig skal hafa í huga að gott er að drekka vel þegar trefjaríks fæðis er neytt.
Udo´s Choice Probiotic Blends eru 5 blöndur meltingargerla. Probiotic eru „góðu" eða „vineittu" gerlarnir sem halda til í allri þarmaflórunni. Þessir vinveittu gerlar hjlápa líkamanum að viðhalda heilsunni og berjast gegn veikindum og sjúkdómum. „Slæmu" gerlarnir geta á hinn bóginn leitt til ójafnvægis í þarmaflórunni og valdið veikindum og sjúkdómum. Á meðan flestir fæðast með nokkuð heilbrigða þarmaflóru hefur aldurinn, lífsstíllinn, umhverfið, lélegt mataræði, streita, sjúkdómar, notkun sýklalyfja í mat sem og gegn sjúkdómum, bakteríusýkingar, áfengisneysla og fleira gríðarleg áhrif á fækkun vinveittu gerlanna. Þegar hlutfalli góðu og slæmu bakteríanna er raskað verður fólk oft vart við vandamál eins og andstyggilega loftþembu, niðurgang, eitrun í þörmunum, hægðatregðu og lélegt frásog næringarefna. Þessi einkenni geta orðið krónísk og veikt ónæmiskerfið. Dagleg neysla á Probiotic-blöndunni getur rétt úr gerlagróðrinum, endurlífgað virkni meltingarvegarins og verndað okkur gegn sjúkdómum. Fimm blöndur eru fáanlegar hjá Heilsu ehf.: Infant blend fyrir ungabörn og smábörn (0-5 ára), Adult‘s Blend fyrir fullorðna (16-65 ára) en hana geta börn á aldrinum 6-15 ára einnig tekið, Advanced Adult (fyrir 65 ára og eldri), Super 8 Hi-Potency (gegn gersveppum (i.e. candita) og Super 5 Lozenge (munnsogstöflur fyrir munnhirðu, andremmu og þruskur). Þar sem þarmaflóran í meltingarveginum er breytilegt eftir æviskeiðum, þá eru probiotic blöndurna miðaðar við sérstakt æviskeið og innihalda gerla sem nauðsynlegir eru hverju sinni. Athugið að geyma þarf Probiotic blöndurnar í kæli.






