Vörumerki Heilsu
Ecover
Ecover er alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiðir vistfræðileg þvotta- og hreinsiefni. Það var stofnað í Belgíu árið 1980. Ecover hefur verið leiðandi frá byrjun og sem dæmi má nefna þá setti Ecover á markaðinn fosfat laust þvottaduft áður en fosfat var viðurkennt sem óæskilegt efni.
Síðan þá hefur Ecover vöruliðunum fjölgað og þróunin verið mikil. Nú er Ecover með stærstu framleiðendum vistvænna þvotta- og hreinsiefna. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Malle, nálægt Antwerpen í Belgíu, en Ecover hefur einnig skrifstofur í Bandaríkjunum, Bretlandi og Sviss. Vörur fyrirtækisins eru nú seldar í yfir 20 löndum.
Framsækin umhverfisstefna fyrirtækisins er ekki eingöngu sett fram með vöruúrvalinu heldur einnig því hvernig fyrirtækið starfar í heild. Fyrirtækið starfar allt samkvæmt ISO 14001 stuðlinum þannig að umhverfisstefna fyrirtækisins er við lýði í öllum deildum fyrirtækisins frá framleiðslu- til markaðsdeildar. Athygli vekur að verksmiðjan er heimsins fyrsta vistfræðilega verksmiðjan sem er með yfir 6000 fermetra grasi gróunu þaki.
Ecover hefur unnið til fjölmargra viðurkenninga og verðlauna fyrir sérstakt framlag og afrek á sviði vistrænnar, sjálfbærrar þróunar. Strax árið 1993 vann Ecover hin virtu Global 500 Roll of Honour verðlaunin frá Umhverfisþróunarsviði Sameinuðu þjóðanna.
Skoðaðu heimasíðu Ecover í Bretlandi HÉR






