Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Vörumerki Heilsu

Windmill Organics

Windmill Organics mikilvægur aðili í þínu lífræna umhverfi

Windmill byrjaði 1978 sem smásöluverslun með áherslu á heilsuna á Fulham road í London. Árið 1981 var bætt við Lífrænum grænmetis veitingastað, maturinn var svo vinsæll, að stofnandi staðarins ákvað að bjóða öðrum smásölum vörurnar til sölu. Fyrsta varan framleidd undir Biona vörumerkinu var granola múslí til morgunverðar, það var framleitt í eldhúsi veitingastaðarins og handpakkað til að selja. Nafnið Biona vísar í lífrænar og hreinar rætur "Bio" sem táknar lífrænt um mest alla Evrópu og "Na" sem stendur fyrir orðið náttúra. Gæðaloforð Biona eru eftirfarandi:

  • Við bjóðum þér fjölbreytt úrval af gæðavörum, fyrir þá sem setja háan standard um gæðavörur sem eingöngu eru lífrænar.
  • Allar vörur okkar eru lífrænar, GMO lausar, henta grænmetisætum og margar henta alhliða grænmetisætum og án allra aukaefna.
  • Við ábyrgjumst 100% rekjanleika og vottun frá bóndanum til hráefnisbirgjanna, allt til enda framleiðslunnar.
  • Við ábyrgjumst hágæða matvöru, siðferðislega rétt framleiddar með fullri virðingu fyrir umhverfinu, og aðeins fyrir þig að njóta.

Lífspeki þeirra er að allt frá bóndanum til neytandans skuli vera eins náttúrulegt og hægt er, allar vörur eru lífrænar, án GMO og allra aukefna. Biona, Amisa, Biofair, Profusion, eru vörumerki sem eru öll framleidd af Windmill Organics, og er þekkt af heiðarleika og gæðum sem fylgir öllum gæðastöðlum til að tryggja að vörurnar þeirra séu öruggar, siðfræðilegar og löglegar.

Gæði eru undirstöðuatriði hjá Windmill Organics og myndar hornstein fyrirtækisins, hvort sem er í vörum eða starfsfólki. Þegar kemur að nýjungum þá eru við stoltir frá að segja að við erum þekkt sem leiðtogar í þeim málum.

Hráefnið sem við notum og þeir sem koma að framleiðslunni deila sömu hugsjón og nota eingöngu lífrænt hráefni, og hugsa um að vernda umhverfið. Allt hráefni er sérstaklega kannað og rannsakað hvort að það standi ekki undir þeim kröfum sem við krefjumst.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Um okkur Samstarfsaðilar

Toppmynd

Skoða Biotta nánar

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta