Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Vörumerki Heilsu

Saga Medica

Heilsa sér um dreifingu á öllum vörum SagaMedica á Íslandi. SagaMedica er leiðandi fyrirtæki í íslenskum náttúruvöruiðnaði, stofnað árið 2000. Stofnun fyrirtækisins á sér rætur í rannsóknarstarfi sem Dr. Sigmundur Guðbjarnason, lífefnafræðingur og fyrrum rektor Háskóla Íslands, hóf árið 1992. Tveimur árum síðar fékk Sigmundur annan lífefnafræðing, Steinþór Sigurðsson, til liðs við sig en þeir hafa unnið ötullega að rannsóknum á íslenskum lækningajurtum. Með rannsóknunum hefur tekist að sýna fram á vísindalegar ástæður fyrir vinsældum vissra jurtategunda í gegnum aldirnar.

Við erum stolt af því að geta þróað hágæðavörur úr íslenskri náttúru. Þær jurtir sem við höfum rannsakað og unnið með hafa mikla sögulega þýðingu fyrir íslensku þjóðina, enda hafa lækningajurtir skipað stóran sess í samfélaginu frá landnámstíð.

Hreinleiki og jákvæð ímynd íslenskrar náttúru skiptir miklu máli fyrir SagaMedica, því sérstaða hráefnis okkar er einstök í alþjóðlegu samhengi.

Vörurnar frá SagaMecica innihalda efni með heilsufarslega þýðingu og hafa sannað sig um árabil hjá neytendum. Við hjá Heilsu erum stolt af því að vera dreifingaraðili fyrir SagaMecica á Íslandi. Vörurnar þeirra fást í öllum apótekum, heilsubúðum og flestum betri matvörubúðum. Nánari upplýsignar um fyrirtækið SagaMedica er að fá á http://www.sagamedica.is/





Forsíða:

Um okkur Samstarfsaðilar

Toppmynd

Nánar um Biotta

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta