Vörumerki Heilsu
Nature Compagne
Fyrirtækið Hugli sem er móðurfyrirtæki Naturcompagne er eitt af stærstu fyrirtækjum Þýskalands á sviði matvælaframleiðslu með starfsemi í mörgum Evrópulöndum.
Heilsa hefur í mörg ár flutt inn ljúffengar lífrænar súpur undir merkjum Natur Compagne. Súpurnar eru tilbúnar til að bæta í þær vatni eða mjólk og eru til í fjölmörgum bragðtegunum. Einnig bjóðum við úrval af grýtum eða tilbúnum grunnum til að búa til ýmsa rétti og síðast en ekki síðst eru bollasúpurnar vinsælu sem allir elska og dá og svo grænmetisteningar í úrvali.






