Framtíðarsýn
Markmið okkar er að stuðla að betri heilsu almennings með því að opna augu fólks fyrir heilbrigðum og ábyrgum lífsstíl. Við höfum ávallt hag neytenda að leiðarljósi.
Heilsa er leiðandi á sínu sviði og leitast við að hafa hæfasta starfsfólkið sem völ er á. Við leggjum höfuðáherslu á góða þjónustu og miðlum upplýsingum til neytenda og fagfólks með ábyrgum og aðgengilegum hætti.
Við bjóðum uppá sérhæfðar vörur sem eru lífrænar, hollar og umhverfisvænar, unnar úr besta fáanlega hráefni og án aukefna. Við veljum samstarfsaðila af kostgæfni og bjóðum uppá heildarlausnir í heilsuvörum, matvöru, hreinlætis- og snyrtivöru, fæðubótarefnum og jurtum.






