Heilsa Húđ og Hár í Smáralind
Heilsa verður með glæsilegan sýningarbás á sýningunni Heilsa, húð og hár í Smáralind helgina 11 - 12 september.
Kjörið tækifæri til að taka heilsuna í gegn og koma sér í gírinn fyrir veturinn:)
Vörukynningar á Sýningarsvæði Heilsu:
Ecover umhverfisvænar hreinlætisvörur fyrir heimili og fyrirtæki hafa lágmarks áhrif á umhverfið en taka óhreinindi föstum tökum. Á sýningunni munum við kynna Ecover vörurnar og veita upplýsingar um virkni og áhrif þeirra á umhverfið. Hægt verður að fá prufur. Sýningargestir fá afsláttarmiða sem gildir í Blómaval og fá menn þá frían fisk hjá dýrabúðinni í Blómaval ef menn versla tvær eða fleiri Ecover vörur í Blómaval.
Udo‘s olía er kjörin blanda af lífrænum fitusýrum sem eru lífsnauðsynlegarfyrir líkaman. Við verðum með Boost bar þar sem fólk getur smakkað gómsætan heilsuhristing fullan af próteini og fitusýrum, búinn til úr Udo‘s olíu og lífrænu skyri frá Bio Bú, ásamt upplýsingum hvernig fitusýrur eru mikilvægar fyrir starfsemi líkamans. Sýningargestir fá afsláttarmiða sem þeir geta framvísað í Heilsuhúsunum og fengið 20% afslátt af Udo‘s Choice vörulínunni.
Yogi te. Kjörið tækifæri til að koma við á básnum hjá Heilsu og smakka nokkrar frábærar bragðtegundir af Yogi te með yndislegum seyðandi jurtablöndum sem eru mikilvægar fyrir heilsuna og láta þér líða vel.
Hefurðu prófað Floravital eða Galexier? Salus jurtasafarnir eins og Floradix, Floravital, Galexier, Saludinam og Intest Care eru 100% lífrænir jurtasafar sem þjóna mikilvægu hlutverki varðandi járn og kalkbúskapinn auk þess að vera mikilvægir fyrir heilbrigða meltingu, brennslu og almennt jafnvægi í líkamanum. Kjörið tækifæri til að smakka og fá ráðgjöf um virkni.
Cocowell er einn heitasti orkudrykkurinn í dag, líkamsræktarþjálfarar stjarna á við Madonnu og Gwyneth Paltrow mæla með kókoshnetuvatni til að hlaða líkamann af orku, steinefnum og vítamínum á náttúrulegan og kaloríusnauðan hátt. Kókoshnetuvatnið frá Cocowell er laust við öll aukefni eins og litarefni og viðbættan sykur. Eini náttúrulegi íþrótta- og orkudrykkurinn á markaðnum. Smakk í boði og góð ráð um hvernig best sé að nota Cocowell.
Xylitol er eitt sniðugasta efni á markaðinum í dag,um helgina kynnum við vörur frá Xlear sem er einn fremsti framleiðandi vara unnum úr xylitoli. Við verðum með Spry tyggigúmmí sem verndar tennurnar gegn skemmdum, Xlear nefúðann sem hjálpar til við að halda bakteríum frá efri öndunarveginum og XyloSweet sem er náttúrulegt sætuefni úr 100 xylitoli, hann kemur í stað sykurs í flesta matargerð og bakstur.
Original Arctic Root er ein vinsælasta lækningajurt í heiminum í dag gegn streitu og til að auka líkamlega getu til að takast á við krefjandi verkefni. Auk þess er hún góð við þunglyndi og getur gagnast þeim sem eru með einkenni athyglisbrests. Þeir sem hafa áhuga á að prófa þessa vöru ættu að kíkja á básinn hjá Heilsu og fá upplýsingar um þessa einstöku vöru.
Innlendir birgjar Heilsu eru Saga Mecica, Villimey og Sóley og verða fyrirtækin með Heilsu á sýningunni, enda sér Heilsa um dreifingu fyrir þau.
Saga Medica er löngu þekkt fyrir vörurnar Saga Pro, Angelica og Saga Memo. Sífellt eru nýjar vörur í þróun hjá fyrirtækinu og lækningamáttur Kvannarinnar er landsmönnum að góðu kunn, enda eru vörur Saga Medica meðal vinsælustu vörum á markaðnum í dag.
Sóley Eiríksdóttir leik og Grasakona hefur slegið í gegn með snyrtivörunum undir merkjum Sóley Organics og er kjörið að koma við á básnum og skoða úrvalið og fá ráðleggingar.
Frá galdrakonunni henni Aðalbjörgu Villimey eru svo vörurnar Bumbu galdur, Bossagaldur og fl. löngu orðið landsþekkt og með vinsælustu smyrslum á markaðnum í dag. 100% lífrænt vottað og hreint. Þessar frábæru vörur eru nú komnar í nýjar umbúðir sem eru umhverfisvænar.






