Ađalréttir - Fiskur
Bragđsterkur engifer-lax
1 kg laxaflak (flök)
1 dl hrásykur
1 dl Maldon hafsalt
4 msk rifinn engifer
rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu
1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla
- Blandið öllum kryddefnum saman.
- Leggið laxinn á fat með roðið niður og sáldrið kryddblöndunni yfir hann og þrýstið inn í flakið með fingrunum.
- Snúið nú flakinu við, þannig að roðið snúi upp. Breiðið plastfilmu yfir fatið og geymið það í ísskáp í u.þ.b. 12 tíma.
- Flakið er tekið úr ísskápnum og skorið í örþunnar sneiðar. Gott er að hafa klettasalat eða léttsoðið spínat með þessum bragðmikla laxi.






