Aðalréttir - Fiskur
Meaux-sinneps lax
1½ kg laxaflak (flök), má vera leginn fiskur
2 msk Maldon hafsalt
hvítur pipar úr kvörn
Meaux-sinnep með grænum pipar
1 ½ dl hrásykur
1 dl gul sinnepskorn sem lögð hafa verið í bleyti yfir nótt
- Leggið flakið á fat með roðið niður. Sáldrið saltinu yfir flakið, svo og sparlega hvítum pipar úr kvörn.
- Smyrjið sinnepinu yfir laxaflakið. Hæfilegt magn er 2 mm lag eða á við þykkt borðhnífs. Síðan er sykri sáldrað yfir flakið og að lokum blautum sinnepskornum.
- Breiðið plastfilmu yfir fatið og geymið í ísskáp í 1 sólarhring. Sé það mjög þykkt og af einum laxi er vissara að hafa það í ísskápnum í 30 tíma.
- Þremur tímum áður en sinnepslaxinn er borinn á borð er hann tekinn af fatinu, vökva sem runnið hefur af honum er fleygt, roðið þerrað og laxinn pakkaður í álpappír í þrjár klst., síðan tekinn úr álpappírnum og skorinn í þunnar sneiðar.
-
Gott brauð frá handverksbakara er kjörið með þessum fiski.






