Aðalréttir - Fiskur
Pasta vongóða veiðimannsins
1 dós Cannelini baunir
2½ dl gott grænmetissoð
2 msk ólívuolía
1 hvítlauksrif
1 rósmarínkvistur
200 g reyktur lax
Herbamare kryddsalt
hvítur pipar úr kvörn
pasta, skrúfur eða slaufur eða annað pasta
- Hellið vatninu af baununum. Blandið saman baunum og grænmetissoði og maukið í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
- Rósmarín og hvítlauksrif eru steikt í ólífuolíunni við fremur vægan hita. Þegar rósmarínið fer að dökkna er hann fjarlægður úr olíunni ásamt hvítlauknum.
- Baunamaukinu er blandað vel saman við olíuna. Baunahræran er krydduð með hvítum pipar og ögn af Herbamare kryddsalti.
- Þá er pastað soðið og laxinn skorinn í örþunna strimla, - hver strimill að svipaðri stærð og eldspýta.
- Þegar pastað er soðið er vatninu hellt af því og baunahrærunni og laxinum blandað vel saman við pastað.
Þetta er bragðgóður en óvenjulegur pastaréttur sem kemur svo sannarlega á óvart.






